Séra Skírnir stefnir Agnesi og þjóðkirkjunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. desember 2020 16:48 Allt stefnir í að biskup og Séra Skírnir takist á fyrir dómstólum. Vísir Fyrrverandi héraðsprestur á Suðurlandi hefur stefnt biskupi Íslands og þjóðkirkjunni og fer fram á tæplega tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur. Hann telur þau bera ábyrgð á skaða sem hann hafi hlotið vegna færslu í embætti árið 2015, í kjölfar kvörtunar hans vegna eineltis, og svo brottrekstri úr kirkjunni fyrr á árinu.
Mannlíf greindi frá þessu í gær .Skírni var vikið úr starfi í apríl fyrir brot á trúnaðarskyldu presta og starfs- og siðareglum þeirra. Það var vegna ummæla hans um konu sem sökuð er um skjalafals í bakvarðasveit á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík. Héraðssaksóknari hefur ákveðið að ákæra ekki konuna og segist hún ætla í skaðabótamál við ríkið vegna handtökunnar. Sömuleiðis ætli hún að stefna fjölmiðlum og netverjum vegna umfjöllunar og orða um málið. Biskup sagði um trúnaðarbrot að ræða Séra Skírnir sagði í viðtali við Vísi, eftir að konan hafði verið handtekin, að hún hefði beitt svikum til þess að fá fjárhagsaðstoð úr líknarsjóði Lágafellskirkju árið 2013 þegar hann var prestur í sókninni. Konan hefði kært hann fyrir brot á persónuverndarlögum, ásamt starfsmanni Mosfellsbæjar, eftir að hann lét kanna hvort hún segði rétt frá. Skírnir sagðist hafa vitað af henni í bakvarðasveitinni eftir að sýnt var frá þyrlu Landhelgisgæslunnar flytja bakverði vestur í Bolungarvík. Hann hefði íhugað að láta lögreglu vita en látið það ógert. Hann hefði þó talað við Gylfa Ólafsson, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og upplýsti hann um hver væri þar á ferð. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sagði í kjölfarið að það blasti við sér að um trúnaðarbrot væri að ræða. „Prestar búa yfir þagnarskyldu og þarna er verið að rjúfa hana að mínum skilningi,“ sagði Agnes. Var ráðningarsambandi þjóðkirkjunnar við Skírni rift. Iðraðist brots síns Séra Skírnir óskaði í framhaldi eftir því að fá að snúa aftur til starfa. „Ég iðrast þess að hafa brotið trúnað gagnvart kirkjunni og skjólstæðingi mínum þarna um kvöldið, nú um daginn. Þetta var fljótfærni og gert í framhaldi af meinlausri fyrirspurn, ég las ekki yfir próförk fréttarinnar sem svo birtist og ég áttaði mig um seinan á að þetta væri alvarlegt mál,“ sagði í kröfubréfi Skírnis til biskups. „Fyrrnefnt brot mitt er tengt þessum kringumstæðum, og kannski flaut úr bikar mínum í símtalinu við blaðakonuna, þetta var ekki fyrir fram ákveðið brot,“ skrifaði Skírnir enn fremur. Biskup stóð við sitt en Skírnir var á launum hjá þjóðkirkjunni út skipunartíma sinn sem lauk í gær. Biskup og kirkjan beri sameiginlega ábyrgð Sigurður Kári Kristjánsson gætir hagsmuna Skírnis í málaferlunum við Agnesi biskup og Þjóðkirkjuna. Hann segir að honum virðist sem svo gott sem öll lög og allar þær reglur sem Þjóðkirkjunni og biskup hafi borið að fylgja við meðferð mála séra Skírnis hafi verið brotin. „Þetta mál er höfðað gegn Þjóðkirkjunni og biskupi persónulega þar sem þau bera sameiginlega ábyrgð á því tjóni sem Skírnir telur sig hafa orðið fyrir. Annars vegar hefur hann orðið fyrir tekjumissi vegna þessara aðgerða allra. Hins vegar telur hann að framganga biskups og kirkjunnar gagnvart honum hafi verið með þeim hætti að hann eigi rétt til miskabóta úr þeirra hendi,“ segir Sigurður Kári við Mannlíf.
Þjóðkirkjan Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Sjá meira