Ágúst: Ég er með samning út næsta ár og ég virði það Atli Freyr Arason skrifar 21. september 2020 21:32 Ágúst á hliðarlínunni fyrr í sumar. vísir/vilhelm
Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu gerði sér grein fyrir því fyrir leik að liðið væri í dauðafæri að reyna að spyrna sér af botninum með sigri á ÍA í dag. V var hann því gífurlega svekktur með 3-0 ósigur í viðtali við leikslok. „Þetta er svekkelsi. Þetta voru erfiðar aðstæður en mér fannst við vera lengi vel inn í leiknum. Þeir skora úr hornspyrnu í fyrri hálfleik þar sem hvorugt liðið skapaði sér mikið af færum. Við settum ágætlega á þá fyrstu 30-35 í seinni hálfleik án þess að skapa okkur mikið.“ „Svo fáum við á okkur klaufamark og víti í lokin sem skilar þessu í 3-0, mér fannst þetta ekki öruggur sigur, þrátt fyrir að tölurnar segja 3-0 þá voru engir yfirburðir á vellinum hjá hvorugu liði. Það voru bara erfiðar aðstæður og smá klaufaskapur hjá okkur sem gera það að verkum að við töpuðum þessum leik,“ sagði Ágúst. Grótta fékk dauðafæri til að jafna leikinn á 70. mínútu sem þeir nýta ekki og Skaginn rýkur af stað í hina áttina og skora mark sem klárar leikinn. „Þetta er kannski saga okkar í sumar. Við fáum kannski tvo til þrjú ágætis færi og þá eigum við til að gleyma okkur í varnarleiknum, förum í þetta sem kallast „ball watching“ og fáum mark í andlitið. Það er oft eitthvað sem nýliðar þurfa að glíma við og við erum í þessu því miður.“ „Það er ekkert sérstakt að vera næstum því á botninum. Skagamenn eru nú komnir á fínan stað í töflunni og skilja okkur svolítið eina eftir á botninum með Fjölni. Þetta lítur ekki sérstaklega vel út fyrir okkur en eins og ég hef oft sagt áður, á meðan það er möguleiki þá gerum við okkar besta að reyna að halda okkur í deildinni,“ sagði Ágúst um klaufaskap nýliðanna í sumar. Varnarleikur ÍA hefur eins og minnst var á hér að ofan fengið mikla gagnrýni og hefur ekkert lið fengið meira af mörkum á sig í deildinni en Skagamenn. Grótta er eina liðið sem ÍA hefur haldið hreinu gegn í sumar og það tvisvar. Aðspurður afhverju Grótta er eina liðið sem nær ekki að skora gegn Skaganum í ár sagði Ágúst: „Við fengum ekki mikið af færum, þau fáu færi sem við fáum gegn Skaganum nýtum við ekki á meðan þeir skora sjö mörk á okkur. Það er ekkert sérstakt.“ Ágúst Gylfason verður þjálfari Gróttu árið 2021 sama hvort liðið verði í Pepsi Max eða Lengjudeildinni. „Ég er með samning út næsta ár og ég virði það,“ sagði Ágúst að lokum.
Pepsi Max-deild karla Grótta Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Grótta 3-0 | Seltirningar í vandræðum Grótta er í verulegum vandræðum eftir 3-0 tap á Skaganum. Falldraugurinn blasir við. 21. september 2020 20:54 Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Fleiri fréttir Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Grótta 3-0 | Seltirningar í vandræðum Grótta er í verulegum vandræðum eftir 3-0 tap á Skaganum. Falldraugurinn blasir við. 21. september 2020 20:54