Aðeins fyrirmenni fá aðgang að allra helgasta hluta Davíðs Kjartan Kjartansson skrifar 13. október 2021 11:39 Davíð er að hluta falinn ofan í hólki í ítalska skálanum á heimssýningunni í Dúbaí. AP/Kamran Jebreili Framsetning á styttunni af Davíð á heimssýningunni í Dúbaí sem nú stendur yfir hefur vakið þó nokkrar deilur. Almennir gestir geta aðeins barið höfuð styttunnar augum en aðgangur að öðrum hlutum hennar er aðeins fyrir fyrirmenni.
Stytta ítalska endurreisnarmyndhöggvarans Mikelangelos af Davíð konungi úr Biblíunni hefur lengi verið þrætuepli. Nekt Davíðs hefur farið fyrir brjóstið á ýmsum í gegnum aldirnar, þar á meðal rómversk kaþólsku kirkjunni sem lét hylja manndóm Davíðs með fíkjublaði. Nýjasta deilan snýst um hvort að aðstandendur ítalska skálans á heimssýningunni hafi gerst sekir um ritskoðun og elítisma. Almennir gestir sjá aðeins höfuð eftirlíkingar af styttunni. Vildarvinir sýningarinnar sem eru með sérstakan aðgang geta hins vegar virt hana fyrir sér frá toppi til táar. „Það ætti ekki að vera tvennt ólíkt það sem þeir ríku, miklu og góðu geta séð annars vegar og venjulegt fólk hins vegar,“ segir Paul Gwynne, listsagnfræðingur við Bandaríska háskólann í Róm, við AP-fréttastofuna. Forstöðumaður ítalska skálans ber því við að framsetning styttunnar sé tegund af listrænni tjáningu. „Það er engin tilviljun að Davíð sést ekki neðan frá og upp eins og vanalega heldur tekur hann á móti fólki með því að horfa í andlitið á því,“ segir David Rampello. Svona birtist Davíð gestum sem stinga inn nefi í ítalska skálann. Þeir geta þó séð hluta af búknum með því að halla sér upp að handriði og líta niður. Fyrirmenni geta valsað um neðri hæð og virt styttuna fyrir sér í allri sinni dýrð.AP/Kamran Jebreili Blaðamaður ítalska blaðsins La Repubblica brást reiður við framsetningu styttunnar í Dúbaí. Styttan er innan í þröngum átthyrndum hólki umkringd eftirlíkingum af rómverskum súlum. Höfuðið stendur upp úr hólknum en búkurinn er fyrir neðan gegnsætt skilrúm. Aðeins er hægt að virða hann almennilega fyrir sér á annarri hæð fyrir neðan þá sem gestir koma fyrst inn. Kynfæri og rass stytturnar eru á milli hæða en gestir geta séð þau með því að standa nærri skilrúminu og líta upp. „Hvers vegna getur maður ekki séð allan líkama Biblíuhetjunnar, því maður sér aðeins höfuðið, mögnuð augun sem stara þögul á þig? Hvar er afgangurinn?“ sagði La Repubblica sem talaði um „afhöfðun“ styttunnar. Dinara Aksyanova, rússnesku gestur heimssýningarinnar, var á meðal þeirra sem varð fyrir sárum vonbrigðum með Davíð. „Hvers vegna var bara helmingur af honum? Það er ekkert vit í því. Áhugaverðasti hlutinn er fyrir neðan,“ sagði Aksyanova.
Sameinuðu arabísku furstadæmin Myndlist Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira