Glódís byrjaði fyrir löngu að undirbúa lífið eftir ferilinn: „Getur alltaf eitthvað komið upp á“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. maí 2022 09:00 Glódís Perla Viggósdóttir settist með blaðamanni Vísis á hótelinu sem íslenska kvennalandsliðið dvaldi á í Prag fyrir leikinn mikilvæga gegn Tékklandi í undankeppni HM í síðasta mánuði. vísir/bjarni Þrátt fyrir að vera enn á besta aldri sem fótboltakona er langt síðan Glódís Perla Viggósdóttir byrjaði að búa sig undir lífið eftir að skórnir fara á hilluna.
Þann 11. júní 2018 skoraði Glódís bæði mörk Íslands í 2-0 sigri á Slóveníu í undankeppni HM. Daginn eftir útskrifaðist hún svo með BA-gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri. View this post on Instagram A post shared by Glo di s Perla Viggo sdo ttir (@glodisperla) Glódís segir að það hafi alltaf verið á stefnuskránni að mennta sig meðfram fótboltanum. „Það var það. Ég ætlaði alltaf að fara í nám og mamma og pabbi sögðu að ég ætti að mennta mig samhliða. Ég hlustaði á þau, fór strax í skóla þegar ég fór út. Ég kláraði BA-námið á þremur árum,“ sagði Glódís sem gekk í raðir Eskilstuna United frá Stjörnunni fyrir tímabilið 2015. Hún lét sálfræðigráðuna ekki duga. „Ég fór í einkaþjálfaranám þegar ég var búin að því, eiginlega bara því mér leiddist. Ég var búin að vera í skóla síðan ég fór út. Þetta var hálft ár sem ég gerði ekkert samhliða og mér leiddist. En ég er útskrifaður einkaþjálfari.“ Náum ekki að safna nógu miklu Glódís vildi vera með vaðið fyrir neðan sig og byrjaði strax að huga að framtíðinni. „Mér fannst alltaf mjög mikilvægt að vera með eitthvað klárt því maður veit ekkert hvað gerist. Það getur alltaf eitthvað komið upp á, meiðsli eða hvað sem er, og mig langaði að vera tilbúin, að þegar ég hætti í fótbolta þyrfti ég ekki þá að fara í skóla og undirbúa næsta skref,“ sagði Glódís. Klippa: Glódís um menntun og framtíðina „Svo er það því miður ekki þannig að við náum að safna okkur nógu miklum pening meðan við erum að spila til að það dugi þegar maður hættir. En það er aðeins meira núna en þegar ég flutti út fyrir átta árum. Það hefur orðið töluverð þróun í því og það lítur betur út núna. En þá var þetta klárlega ekki eitthvað sem maður var að fara lifa á lengi.“ Glódís er ekki hætt og stefnir á að ná sér í meistaragráðu. Í hverju liggur þó ekki enn fyrir. „Ég er alltaf að skoða og reyna að finna mér eitthvað en hef ekki fundið draumanámið ennþá,“ sagði Glódís að lokum.
Landslið kvenna í fótbolta Tengdar fréttir „Slæ metið hennar Söru og hætti svo“ Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára hefur Glódís Perla Viggósdóttir spilað 101 A-landsleik fyrir Íslands hönd. Hún er ekki viss hvort hún nái tvö hundruð landsleikjum en vill allavega bæta leikjamet landsliðsins. 10. maí 2022 09:01 Mest lesið Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Körfubolti McIlroy sækir um skilnað nokkrum dögum fyrir PGA-meistaramótið Golf United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Enski boltinn Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur Körfubolti Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna Enski boltinn Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Körfubolti Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Enski boltinn Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Enski boltinn Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti Fleiri fréttir Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka Emirates verður aðalheimavöllur Arsenal á næstu leiktíð Stig tekið af Ásdísi Karenu og félögum hennar „Við erum allar að læra þetta“ KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt Guardiola: Arsenal verður meistari ef við vinnum ekki Tottenham Napoli leiðir kapphlaupið en Juventus tilbúið að láta Genoa fá tvo fyrir Albert Var með 0,99 í xG en skoraði samt ekki „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ Varane kveður United eftir tímabilið Fernandes íhugar að stökkva frá borði „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Telja að hann hafi sent tvíburabróðurinn til Rúmeníu í sinn stað Lygileg toppbarátta í Danmörku Hrósaði karakter leikmanna eftir að liðið henti frá sér unnum leik Sjá meira
„Slæ metið hennar Söru og hætti svo“ Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára hefur Glódís Perla Viggósdóttir spilað 101 A-landsleik fyrir Íslands hönd. Hún er ekki viss hvort hún nái tvö hundruð landsleikjum en vill allavega bæta leikjamet landsliðsins. 10. maí 2022 09:01
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Körfubolti