Völlurinn frosinn og leikur Chelsea og Liverpool flautaður af Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. janúar 2023 14:30 Flauta þurfti leik Chelsea og Liverpool af vegna þess að völlurinn var frosinn. Clive Rose/Getty Images Það voru aðeins rúmar sex mínútur liðnar af leik Chelsea og Liverpool í ensku Ofurdeildinni þegar flauta þurfti leikinn af. Hættulegar aðstæður sköpuðust fyrir leikmenn og aðra þátttakendur leiksins þar sem völlurinn var frosinn.
Þrátt fyrir að hafa skoðað völlinn fyrir leik var það ekki fyrr enn eftir að hann hófst að dómarar og aðrir framkvæmdaraðilar leiksins áttuðu sig á því að völlurinn hafi ekki verið í nægilega góðu standi til að hægt væri að leika á honum. The referee has taken the decision to abandon today's game due to a frozen pitch.The club will provide a further announcement on the fixture in due course.#CFCW— Chelsea FC Women (@ChelseaFCW) January 22, 2023 Eftir leikinn hafa heyrst háværar gagnrýnisraddir sökum þess að vellirnir sem leikið er á í kvennadeildum Englands eru almennt ekki upphitaðir og því ljóst að mikil hætta getur skapast yfir vetrartímann. Þjálfarar beggja liða gagnrýndu ákvörðunina um að leikurinn skildi fara fram í dag, enda hafi verið augljóst að völlurinn var óleikfær. „Þau vildu bíða og sjá hvernig þetta myndi fara, það var útskýringin,“ sagði Matt Beard, þjálfari Liverpool í viðtali eftir að leikurinn var flautaður af. „Það var ekki öruggt að vera þarna hjá varamannabekkjunum. Það voru nokkrir blettir á miðsvæði vallarins og hér og þar sem þetta var í lagi, en á stærstum hluta vallarins var það ekki.“ „Hitastigið var ekkert að fara að batna í dag. Það á bara að kólna.“ Emma Hayes, þjálfari Chelsea, tók í sama streng og segir að það hafi í raun verið vitleysa að hefja leik. „Maður sá það strax frá fyrstu mínútu að þetta var eins og svell á köntunum,“ sagði Hayes. „Það er ekki undir okkur þjálfurunum komið að ákveða hvort leikirnir fari fram. Það er undir knattspyrnusambandinu og dómurum komið. Nú er komið að því að við verðum að fá hita undir vellina. Við verðum að taka leikinn okkar alvarlega.“ „Leikurinn átti aldrei að fara fram,“ bætti Hayes við. Staðan er óásættanleg Eins og áður segir hafa háværar gagnrýnisraddir heyrst eftir að leikur Chelsea og Liverpool var flautaður af. Janine Beckie, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segir stöðuna óásættanlega. 4 years playing in England and this was a potential reality for every team, every week. The WSL is a top 3 league in the world, this is unacceptable and the players deserve to be playing in suitable grounds where this is not a reality. We’re far past this in the women’s game! https://t.co/qsEA67EZH2— Janine Beckie (@janinebeckie) January 22, 2023 „Fjögur ár sem ég spilaði á Englandi og þetta gat komið fyrir hvaða lið sem er í hverri einustu viku. Þetta er ein af þrem stærstu deildum í heimi. Þetta er óásættanlegt og leikmenn eiga skilið að spila á góðum völlum þar sem þessi möguleiki er ekki til staðar. Kvennaboltinn er kominn miklu lengra en þetta!“ ritar Beckie á Twitter-síðu sína. CHE - LIV… 🤦🏼♀️ and (TOT - LEI) #WSL Players safety should always come first. Luckily no one got injured today.Only way to fix this is to demand undersoil heating or playing our games in men’s stadiums. FA and clubs, please do better. 🙏🏽— Vivianne Miedema (@VivianneMiedema) January 22, 2023 So so sorry to all our fans who turned up today and braved the cold weather. This shouldn’t be happening and we will demand more for our game. Angry and frustrated but we will be ready for Wednesday 💙 @ChelseaFCW— Erin Cuthbert (@erincuthbert_) January 22, 2023
Enski boltinn Mest lesið „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Íslenski boltinn Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Fótbolti Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Enski boltinn Brotthvarf Óskars „eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Óskar Hrafn hættur hjá Haugesund Fótbolti Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Enski boltinn „Erum ekki á góðum stað sem fótboltalið í augnablikinu“ Fótbolti Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Fótbolti Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Cole Palmer valinn bestur í apríl Fjórtán ára strákur með Man City klásúlu í samningi sínum við annað félag Rodri kemur ekki til greina en Spánn á bestu stjórana Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Telja að Man United hafi saknað leiðtogahæfileika Martínez Forest í bullandi fallhættu vegna bulls í fjármálum Segir að Casemiro hafi verið aðhlátursefni gegn Palace „Síðasti naglinn í kistu Ten Hag“ Ten Hag: Leikmennirnir hefðu átt að halda áfram að berjast líkt og stuðningsfólkið Crystal Palace lék sér að Man United Van Dijk vill hjálpa til við að skrifa næsta kafla Liverpool Eyddi öllum Liverpool-myndum Dómarinn verður með myndavél á höfðinu Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Markaveisla hjá Chelsea á móti nágrönnum sínum Lehmann keypti „Invincibles“ nafnið eftir að Arsenal sofnaði á verðinum Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Sjá meira