Tvær konur saka ríkisstjóra New York um kynferðislega áreitni Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 1. mars 2021 22:56 Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, hefur verið ásakaður af tveimur fyrrverandi starfsmönnum sínum um kynferðislegt áreiti. AP Photo/Seth Wenig Ríkisstjóri New York ríkis í Bandaríkjunum hefur verið ásakaður af tveimur fyrrverandi aðstoðarkonum sínum um kynferðislega áreitni. Hann hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum en önnur kvennanna segir hann hafa gert lítið úr áreitinu í afsökunarbeiðninni.
Charlotte Bennett, 25 ára heilbrigðisstefnuráðgjafi Demókrata í New York þar til í nóvember, steig fram á laugardag og greindi frá því í viðtali við The New York Times að ríkisstjórinn, Andrew Cuomo, hafi ítrekað spurt hana út í kynlíf hennar, þar á meðal hvort hún hafi nokkurn tíma stundað kynlíf með eldri karlmönnum. Cuomo, sem er sjálfur á sjötugsaldri, sagði í yfirlýsingu á laugardag að hann hafi aldrei reynt við Bennett og hafi aldrei ætlað sér að vera óviðeigandi í garð hennar. Hann viðurkenndi þó í gær að hegðun hans gagnvart aðstoðarkonunum „gæti hafa verið óviðeigandi eða of persónuleg.“ Hann hefur einnig samþykkt að vera samvinnuþýður við ríkissaksóknara fylkisins sem hefur hafið rannsókn á málinu. Ríkissaksóknarinn hefur fengið heimild til þess að standa að rannsókn á málinu og hefur hann heimild til þess að ráða sjálfstæða lögfræðistofu til þess að annast rannsóknina. Eðli málsins samkvæmt yrði töluverður hagsmunaárekstur framkvæmdi skrifstofa ríkissaksóknara rannsóknina enda ríkissaksóknari undirmaður ríkisstjóra. Þegar niðurstöður rannsóknarinnar liggja fyrir munu þær verða kynntar opinberlega. Cuomo heldur því þó fram að hann hafi aldrei snert neinn á óviðeigandi hátt eða boðið nokkrum neitt óviðeigandi. Hann sagði í gær að hann hafi strítt starfsmönnum sínum vegna hluta sem voru í gangi í þeirra einkalífi til að reyna að vera „skemmtilegur“ eða „playful“ eins og hann orðaði það. Segir Cuomo hafa kysst sig óumbeðinn Bennett gagnrýndi afsökun hans harðlega í dag og sagði afsökunarbeiðnina illa út hugsaða og tilraun til þess að gera lítið úr málinu. Hún sagði hann „neita að viðurkenna eða taka ábyrgð á kynferðislega ógnandi hegðun sinni.“ „Það tók ríkisstjórann sólarhring og mikla gagnrýni til að heimila sjálfstæða rannsókn á málinu. Þetta eru ekki viðbrögð einhvers sem finnst hann bara misskilinn; þetta eru viðbrögð einstaklings sem hefur völd til að forðast réttlætið,“ sagði Bennett í dag. Bennett er, eins og áður segir, ekki eina konan sem hefur sakað Cuomo um kynferðislega áreitni. Lindsey Boylan, sem einnig starfaði fyrir ríkissaksóknara, sakaði Cuomo um að hafa látið óviðeigandi ummæli um útlit hennar falla og segir hann hafa kysst sig einu sinni að loknum fundi. Cuomo hefur harðneitað ásökunum Boylan en sagði á laugardag að Bennett hafi verið lykilstarfsmaður á tímum Covid og að hún hafi allan rétt á því að tala um reynslu sína.
Bandaríkin Kynferðisleg áreitni valdamanna Kynferðisofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Fleiri fréttir Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Sjá meira