Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2021 18:10 Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3 prósent var að það að mestu vegna aukinna húsnæðislána. Vísir/Egill Íslandsbanki hagnaðist um 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2021 og arðsemi eigin fjár var 7,7 prósent. á sama fjórðungi árið 2020 tapaði bankinn 1,4 milljarði og arðsemi eigin fjár var neikvæð um þrjú prósent.
Í afkomutilkynningu Íslandsbanka er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra, að ánægjulegt sé að sjá að afkoman komi vel út og sé í takti við þróunina seinni hluta síðasta árs. Heildareignir Íslandsbanka voru 1,39 milljarðar króna í lok mars en í lok síðasta árs voru þær 1,34 milljarðar. Útlán til viðskiptavina jukust um 2,3 prósent var að það að mestu vegna aukinna húsnæðislána. Eiginfjárhlutfall bankans í lok mars var 21,9 prósent, samanborið við 23 prósent í lok síðasta árs. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar á vef Íslandsbanka. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: Það er ánægjulegt að sjá að afkoma fyrsta ársfjórðungs kemur vel út og er í takti við þá þróun sem var á seinni hluta síðasta árs. Hagnaður bankans á tímabilinu var 3,6 milljarðar sem skilar arðsemi eigin fjár upp á 7,7% og er það mikill viðsnúningur frá sama tímabili í fyrra. Vöxtur var í heildartekjum á milli ára og virðisrýrnun var mun lægri en á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Fjárfestingar undanfarinna ára í innviðum og stafrænum lausnum og aukin stafræn notkun viðskiptavina leiddu til lækkunar á kostnaðarhlutfalli bankans á milli ára. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,8% og útlán til viðskiptavina jukust um 2,3% frá árslokum. Aukninguna í útlánum má aðallega rekja til áframhaldandi aukinnar eftirspurnar á húsnæðislánamarkaði en mun styttri biðtími er eftir afgreiðslu húsnæðislána en áður og mælist mikil ánægja með þjónustuna. Við finnum að eftirspurnin er líka orðin fjölbreyttari og nú býður bankinn viðskiptavinum sínum græn húsnæðislán við fjármögnun á vistvænu húsnæði á hagstæðari kjörum. Þróun stafrænna lausna á síðustu árum hefur verið hröð og tók stökk þegar þörfin var hvað mest í upphafi heimsfaraldurs. Frá árinu 2017 höfum við séð 20% árlegan vöxt í fjölda notenda í appi og nú eru 99% snertinga við einstaklinga stafrænar. Við höldum áfram á stafrænni vegferð og meðal nýjunga sem við kynntum nýverið er viðbót í appið þar sem viðskiptavinir geta fylgst með kolefnisspori einkaneyslu sinnar. Nýlega kynntum við markmið Íslandsbanka um að ná fullu kolefnishlutleysi eigi síðar en árið 2040. Undanfarin tvö ár hefur eigin rekstur bankans verið kolefnishlutlaus en nú á markmiðið einnig við um kolefnisspor af öllu lána- og eignasafni bankans. Við erum afar stolt af þessu markmiði sem er í takti við metnaðarfulla áætlun Íslands í loftslagsmálum. Á dögunum hlaut Íslandsbanki flest stig íslenskra fyrirtækja í UFS mati Reitunar en samkvæmt matinu hefur bankinn unnið vel að því að koma sjálfbærnimiðaðri hugsun inn í starfsemi bankans. Einnig hlaut bankinn Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf í þágu umhverfismála á síðasta ári. Þessir áfangar styðja svo sannarlega við það hlutverk bankans að vera hreyfiafl til góðra verka og sýnum við það í verki með góðum árangri á sviði sjálfbærnimála. Fjárhagsstaða bankans er áfram sterk og undirstöður traustar. Efnahagsreikningur bankans er traustur með eigin- og lausafjárhlutföll vel yfir innri markmiðum og kröfum eftirlitsaðila. Fjárhagsleg markmið bankans hafa verið uppfærð með það að markmiði að gefa skýrari mynd af þróun og áherslum í stefnu bankans. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur á opinberum vettvangi lýst því yfir að unnið sé að skráningu hlutabréfa bankans á skipulegan verðbréfamarkað, að undangengnu útboði, og að stefnt sé að því að hún eigi sér stað í júní. Það er því ljóst að spennandi tímar eru framundan.
Íslenskir bankar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira