Solskjær framlengir við Manchester United Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 11:30 Solskjær verður áfram við stjórnvölin næstu þrjú árin í rauða hluta Manchester-borgar. Andy Rain/Getty Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. United gaf út tilkynningu þess efnis í dag.
Solskjær tók við United af Portúgalanum José Mourinho í árslok 2018 og var þá ráðinn til bráðabirgða. Í kjölfar þess gerði hann þriggja ára samning sem rann til næsta sumars, 2022. Nú hefur United tryggt framtíð Norðmannsins hjá félaginu með nýjum þriggja ára samningi, sem rennur út sumarið 2024. Our past. Our present. . We are delighted to announce that Ole has signed a new deal with the club! #MUFC— Manchester United (@ManUtd) July 24, 2021 United fékk 66 stig undir stjórn Solskjærs eftir að hann tók við af Mourinho, en fékk sama stigafjölda á fyrsta heila tímabilinu undir hans stjórn. Á því fyrra hafnaði United í 6. sæti deildarinnar en það dugði til 3. sætis á því síðara. United komst þá í undanúrslit í þremur keppnum; deildabikarnum, FA-bikarnum og Evrópudeildinni tímabilið 2019-20 undir stjórn Solskjærs. Á nýliðinni leiktíð stýrði Solskjær liðinu í annað sæti deildarinnar, á eftir grönnunum í Manchester City, og varð hann þar með sá fyrsti til að stýra United í Meistaradeildarsæti tvö tímabil í röð frá því að Sir Alex Ferguson hætti árið 2013. Liðið komst þá í úrslit Evrópudeildarinnar en tapaði fyrir spænska liðinu Villarreal eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitum. Solskjær leitar enn síns fyrsta titils með félaginu, það er sem stjóri, en hann vann sex Englandsmeistaratitla, auk tveggja bikartitla og Meistaradeildartitils sem leikmaður félagsins árin 1996 til 2007.
Enski boltinn Mest lesið Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Fleiri fréttir Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Palace á mikilli siglingu Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Óvænt U-beygja í Katalóníu Mbappé í stuði er PSG gott sem tryggði titilinn Alfons og félagar nálgast Meistaradeildarsæti Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Annar heimsmeistari til LAFC Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Infantino: Stórkostlegt að hitta Þorvald Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Tevez fluttur á spítala vegna brjóstverkja Þjálfari hljóp inn á, var rekinn út af og reyndi að faðma dómara Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Sjá meira