Landsliðsmaður að færa sig um set

Hjörtur Hermansson í baráttunni við Bukayo Saka í leik Íslands …
Hjörtur Hermansson í baráttunni við Bukayo Saka í leik Íslands og Englands. AFP

Varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson mun yfirgefa danska félagið Brøndby í sumar samkvæmt heimildum Ekstra Bladet.

Samningur Hjartar við Brøndby rennur út í sumar en hann hefur verið hjá danska félaginu frá árinu 2016 þegar hann kom frá PSV í Hollandi.

Hjörtur hefur leikið yfir 100 leiki með Brøndby en ekki verið í stóru hlutverki að undanförnu. Hjörtur á 18 A-landsleiki að baki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka