Körfubolti

Elvar Már öflugur í stór­sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Elvar Már heldur áfram að gera það gott í Litáen.
Elvar Már heldur áfram að gera það gott í Litáen. Vísir/Hulda Margrét

Elvar Már Friðriksson skilaði fínu dagsverki í öruggum sigri Rytas á Pieno Žvaigždės í litáensku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Lokatölur 104-75 Rytas í vil.

Eins og lokatölur gefa til kynna var sigurinn í öruggara lagi og kláraði Rytas leikinn svo gott sem strax í þriðja leikhluta. Elvar Már spilaði rúmar 22 mínútur í leiknum og skoraði 12 stig, gaf 8 stoðsendingar og tók eitt frákast.

Eftir sigur dagsins er Rytas í 2. sæti efstu deildar í Litáen með 17 sigra í 22 leikjum. Er liðið aðeins einum sigurleik á eftir toppliði Zalgaris.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×