Ísland upp um fimm sæti á Regnbogakorti Evrópu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 12. maí 2022 11:42 Malta trónir enn á toppnum en Ísland er komið upp í níunda sæti. ILGA-Europe Ísland hækkar um fimm sæti á milli ára á Regnbogakorti ILGA Europe. Ísland er nú komið í níunda sæti en var í því fjórtánda í fyrra. Utanríkisráðherra segir lög um kynrænt sjálfræði spila stórt hlutverk í þessari þróun.
Evrópusamtök hinsegin fólks, ILGA-Europe, birta Regnbogakortið árlega í kring um alþjóðlegan baráttudag hinsegin fólks sem er 17. maí. Kortið sýnir á myndrænan hátt lagalega stöðu og réttindi hinsegin fólks í ríkjum Evrópu. Fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að lög um kynrænt sjálfræði, sem sett voru hér á landi árið 2019, hafi komið til móts við ný og breytt viðhorf til opinberrar skráningar kyns og stuðli að réttarbótum fyrir trans og intersex fólk með því að staðfesta rétt einstaklinga til að breyta kynskráningu sinni í samræmi við eigin upplifun og án þess að þurfa að sæta skilyrðum um sjúkdómsgreiningu og læknismeðferð. Þá hafi réttur trans foreldra enn fremur verið bættur þegar kemur að foreldraskráningu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra fagnar því að Ísland sé komið í tíu efstu ríkin á listanum. Hún segir það mega rekja til þessara breytinga á lögum um kynrænt sjálfræði. Pleased to see #Iceland 🇮🇸 in the top 1️⃣0️⃣ countries of the #RainbowEurope 2022 of @ILGAEurope #Iceland is now in 9th place, climbing up five places since last year. This is due to recent domestic legal reforms to continue improving the rights of all #LGBTI individuals 🏳️🌈🏳️⚧️ https://t.co/fCpLHiWEFW— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (@thordiskolbrun) May 12, 2022 „Ísland stefnir enn hærra og hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra nú lagt fram þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun í málefnum hinsegin fólks. Verði þingsályktunartillagan samþykkt mun hún leiða til enn frekari réttarbóta fyrir hinsegin fólk,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins. Slík aðgerðaráætlun, auk verkefna í aðgerðaráætluninni, er talin líkleg til að þoka Íslandi enn hærra á Regnbogakortinu. Danmörk og Ísland eru hástökkvarar Norðurlandanna í ár og er Danmörk nú í öðru sæti á kortinu, en var í níunda sæti í fyrra. Svíþjóð og Noregur hækka um eitt sæti en Finnland fellur niður um sex sæti og er nú í tólfta sæti á listanum. Malta trónir enn á toppnum og Aserbaídsjan er enn í neðsta sæti.
Hinsegin Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent Dregur framboðið til baka Innlent Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Innlent Fleiri fréttir Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Ásdís Rán, Arnar og Ástþór mætast í Pallborðinu „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Sjá meira