Körfubolti

229 sm NBA-stjarna er nú lamaður fyrir neðan mitti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Shawn Bradley var lengi liðsfélagi þeirra Steve Nash og Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks.
Shawn Bradley var lengi liðsfélagi þeirra Steve Nash og Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks. EPA/TOM TREICK

Shawn Bradley er einn af hávöxnustu leikmönnunum í sögu NBA en þessi 229 sentimetra leikmaður spilaði í deildinni í fjórtán ár. Hjólslys fyrir ári síðan breytti lífi hans en hann hefur síðan verið lamaður fyrir neðan mitti.

Bradley sagði Sports Illustrated frá því hvað kom fyrir hann í janúar 2021. Bradley var úti að hjóla og að fara út úr hringtorgi nálægt heimili sínu í St. George í Utah þegar Dodge smárúta keyrði á hann. Við stýrið var ökumaður sem var að drífa sig að ná í barnið sitt úr skóla.

Brian Burnsed skrifaði greinina um Shawn Bradley og fékk að vita meira um slysið. Hann sagði frá því að Bradley flaug yfir bílinn og lenti með höfuðið fyrst á malbikinu. Hjálmurinn hans brotnaði undan þunganum en hinn 229 sentimetra maður var meira en 136 kíló. Konan sem keyrði á hann var aldrei kærð og hélt því fram að hún hafi gefið Bradley nægt rými þegar hún fór framhjá honum.

Bradley lá í jörðinni á eftir og gat hvorki hreyft hendur né fætur. Hann gat ekki sest upp og átti í erfiðleikum með að anda. Hann var fluttur á sjúkrahús og eyddi þremur vikum á gjörgæsludeild áður en hann var fluttur á sérstaka deild fyrr fólk með samskonar meiðsli.

Bradley er lamaður fyrir neðan mitti og fer um í hjólastól. Þetta er sérstakur hjólastóll sem vegur 226 kíló og það tók þrjá mánuði að útbúa hann sérstaklega fyrir Bradley. Hann treystir nú á hjólastólinn, eiginkonuna Carrie og börnin þeirra þrjú.

Shawn Bradley var valinn númer tvö í nýliðavalinu árið 1994. Á ferlinum var hann með 8,1 stig, 6,3 fráköst og 2,5 varin skot að meðaltali í leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×