Framlengingin: Njarðvíkingar eru of gamlir til að keppa um þann stóra Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2023 23:32 Njarðvíkingar fögnuðu bikarmeistaratitlinum árið 2021. Liðið mun þó ekki eppa um Íslandsmeistaratitilinn í vor sökum aldurs ef marka má sérfræðinga Körfuboltakvölds. Vísir/Hulda Margrét Næstsíðasta umferð Subway-deildar karla í körfuknattleik lauk í gær og Hörður Unnsteinsson, Örvar Þór Kristjánsson og Brynjar Þór Björnsson fóru yfir alla leikina í þættinum Subway Körfuboltakvöld í gærkvöldi.
Fyrsta spurningin í Framlengingunni snéri að aldri Njarðvíkurliðsins þar sem Hörður, stjórnandi þáttarins, spurði einfaldlega hvort Njarðvíkingar væru of gamlir. „Ég ætla að byrja á þér Örvar, Njarðvíkingnum sjálfum. Eru Njarðvíkingar of gamlir til að keppa um Íslandsmeistaratitilinn?“ spurði Hörður blákalt. „Eins og þeir voru í kvöld, þá já,“ sagði Örvar, en Njarðvíkingar máttu þola 25 stiga tap gegn Valsmönnum og misstu þar með deildarmeistaratitilinn í hendur Vals. „Þetta er það sem klikkaði í fyrra. Mér fannst þeir springa svolítið á móti Tindastól og verða þreyttir. Núna hafa þeir vissulega meiri breidd, en ég hræðist það pínu að þessir eldri leikmenn og Haukur [Helgi Pálsson] með sín meiðsli ef þeir þurfa að fara að spila á tveggja eða þriggja daga fresti í seríum. Ég vona ekki og hef trú á mínum mönnum en þetta gæti vegið þungt í seríu.“ Brynjar Þór tók í sama streng og kollegi sinn. „Þetta er allt of hár aldur að mínu mati. Að treysta á þessa leikmenn og Hauk með sína sögu. Við sáum það alveg í úrslitakeppninni í fyrra þegar þetta var komið í þriðja, fjórða eða fimmta leik þá fór líkaminn aðeins að segja til sín. Það eru of margar viðvörunarbjöllur sem hringja og mér finnst við vera að horfa á það sama og í fyrra.“ Klippa: Körfuboltakvöld: Framlenging 21. umferðar Aldur Njarðvíkinga var þó langt frá því að vera eina umræðuefnið í Framlengingunni því strákarnir fóru um víðan völl eins og alltaf. Þeir veltu einnig fyrir sér hvort KR eða ÍR yrði á undan að vinna sér aftur inn sæti í efstu deild, hvort Sauðkræklingar væru farnir að finna lykt af úrslitum, hvort það væri stærsta afrek tímabilsins ef Höttur næði að vinna sér inn sæti í úrslitakeppninni og hver framtíð Stjörnunnar verður ef liðið missir af sæti í úrslitakeppni. Framlenginuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Körfuboltakvöld UMF Njarðvík Subway-deild karla Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fleiri fréttir Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti