Stefna Snæfellsbæ: „Verkfallsbrot af öllu tagi eru algerlega óþolandi“ Margrét Björk Jónsdóttir og Samúel Karl Ólason skrifa 3. júní 2023 14:34 Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB. Vísir/Ívar BSRB hefur stefnt Snæfellsbæ fyrir Félagsdóm þar sem talið er að ítrekuð verkfallsbrot hafi verið framin á leikskólum. Varaformaður bandalagsins segir verkfallsbrot óþolandi en þau þétti fólk saman og styrki í baráttunni um betri kjör.
Fyrst var sagt frá stefnunni á vef Ríkisútvarpsins, þar sem fram kemur að umrædd brot séu talin hafa verið framin á leikskólum í Ólafsvík og á Hellissandi. Fólk hafi verið fært milli vinnustaða og gengið hafi verið í störf fólks í verkfalli. Þórarinn Eyfjörð, varaformaður BSRB, segir að upp hafi komið atvik, þó ekki víða, þar sem hann telji að streitan í kringum verkfallið og skerta þjónustu hafi valdið því að fólk hafi ekki séð við því á öllum stöðum. „Sem betur fer er þetta ekki víða. Í langsamlega flestum tilfellum skilja stjórnendur ástæður þess að við erum i þessari baráttu. Þau vita alveg á hvaða launum okkar félagsmenn eru og bera virðingu fyrir baráttunni,“ segir Þórarinn. Hann segir að ef vekja þurfi athygli á verkfallsbrotum og koma í veg fyrir þau, sé það gert. Aðspurður um það hvernig svona verkfallsbrot koma upp, segir Þórarinn að félagsmenn á svæðinu hafi heyrt sögur og þetta rati til BSRB í gegnum öflugt samtalsnet bandalagsins. Fylgst sé með um allt land hvernig verkfallið gangi. „Við sjáum að í langflestum tilvikum er framganga allra alveg til sóma og engir hnökrar á því. En það geta komið upp tilvik þar sem eitthvað fer aðeins út af sporinu. Þá bara vinnum við að því að koma því aftur á sporið.“ Þórarinn segir að ákvörðunin um að stefna Snæfellsbæ hafi verið tekin því það þurfi að bregðast við þar sem „hlutirnir ganga aðeins of mikið úr skorðum.“ Ekki er hægt að segja til um afleiðingar þess að BSRB hafi höfðað mál gegn Snæfellsbæ. Um sé að ræða leið til að stöðva brotin. „Áhrifin á baráttuna og áhrifin á móralinn eru þau að þetta þéttir fólk enn betur saman,“ segir Þórarinn. Þetta styrki aðra í baráttunni. Hann segir að þegar búið sé að þvinga launafólk í baráttu af þessu tagi sé ekki boðlegt að standa í stríði við fólk sem sé eingöngu að verja rétt sinn og leggja áherslu á kröfur sínar. Verkfallsbrot af öllu tagi séu algerlega óþolandi. „Þau eru það og þá erum við bara farin með það í réttan farveg, sem er þessi formlegi farvegur,“ segir Þórarinn. „En það er auðvitað skrítið að fólk skuli ekki vera fljótara til. Það er alltaf betra.“
Kjaraviðræður 2022-23 Sveitarstjórnarmál Snæfellsbær Tengdar fréttir Samningar við BSRB stranda á kröfum um afturvirkni Formaður samninganefndar sveitarfélaganna í viðræðum við BSRB segir þær stranda á kröfu bandalagsins um launahækkun inn á samningstíma útrunninna samninga. Átta klukkustunda sáttafundi lauk í Karphúsinu upp úr klukkan sex án árangurs. 2. júní 2023 18:27 Þriggja daga maraþonfundi lokið án árangurs Lítið hefur miðað á þriggja daga fundum forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga en fundi sem hófst klukkan tíu í morgun lauk nú klukkan rétt rúmlega sex 2. júní 2023 18:24 „Við höfum lagt fram tilboð eftir tilboð“ Fulltrúar samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga héldu að nýju til viðræðna í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun. Formaður samninganefndar SÍS segir að deilan snúist aðallega um afturvirkni. 2. júní 2023 12:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira
Samningar við BSRB stranda á kröfum um afturvirkni Formaður samninganefndar sveitarfélaganna í viðræðum við BSRB segir þær stranda á kröfu bandalagsins um launahækkun inn á samningstíma útrunninna samninga. Átta klukkustunda sáttafundi lauk í Karphúsinu upp úr klukkan sex án árangurs. 2. júní 2023 18:27
Þriggja daga maraþonfundi lokið án árangurs Lítið hefur miðað á þriggja daga fundum forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga en fundi sem hófst klukkan tíu í morgun lauk nú klukkan rétt rúmlega sex 2. júní 2023 18:24
„Við höfum lagt fram tilboð eftir tilboð“ Fulltrúar samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga héldu að nýju til viðræðna í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan tíu í morgun. Formaður samninganefndar SÍS segir að deilan snúist aðallega um afturvirkni. 2. júní 2023 12:46