Viðskipti innlent

Flugfélagið Atlanta fær Boeing 777-breiðþotur

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fyrri Boeing 777-vél Air Atlanta í Jeddah í Sadí-Arabíu í gær. Áætlað er að hún fari í fyrsta pílagrímaflugið fyrir Saudia-flugfélagið um helgina.
Fyrri Boeing 777-vél Air Atlanta í Jeddah í Sadí-Arabíu í gær. Áætlað er að hún fari í fyrsta pílagrímaflugið fyrir Saudia-flugfélagið um helgina. Air Atlanta/Magnús Sigurðsson

Air Atlanta hefur fyrst íslenskra flugfélaga tekið Boeing 777-breiðþotuna í notkun. Hún er stærsta farþegaflugvél heims sem er í framleiðslu um þessar mundir.

Þegar Boeing afhenti síðustu 747-þotuna úr verksmiðjunum í febrúar var birtur listi yfir þau flugfélög heims sem rekið hefðu flestar slíkar þotur í yfir hálfrar aldar sögu hennar. Það rak eflaust marga í rogastans að sjá íslenskt flugfélag í fjórða sæti.

Boeing 747-farþegaþota Air Atlanta við landgang á flugvellinum í Medína.Air Atlanta

Covid-heimsfaraldurinn varð til þess að Air Atlanta hætti farþegaflugi um tíma og sneri sér alfarið að fraktflugi. Dæmi mátti sjá í fréttum Stöðvar 2 þegar félagið flutti lyfjafarm frá Belgíu til Suður-Afríku fyrir Magma-fraktfélagið.

Atlanta hóf endurkomu sína í farþegaflug í fyrra með pílagrímaflugi. Lending Boeing 747 í Medina í Sádí-Arabíu í gær með pílagríma frá Surabaya í Indónesíu fyrir Saudia-flugfélagið markar upphaf pílagrímaflugs Atlanta í ár.

Boeing 777-vél Atlanta við flugstöðina í Jeddah.Air Atlanta/Magnús Sigurðsson

En það eru önnur tímamót í sögu félagsins og það risastór. Þessi Boeing 777-300 við flugstöðina í Jeddah er önnur tveggja sem Atlanta er að taka í notkun þessa dagana, einnig til að flytja pílagríma fyrir Saudia. Atlanta-menn gera ráð fyrir að taka seinni 777-vélina í notkun í byrjun júnímánaðar. Þær verða skráðar á Air Atlanta Europe á Möltu, systurfélag Air Atlanta Icelandic.

Tíu sæti eru í hverri sætaröð. Alls eru 494 farþegasæti í flugvélinni.Air Atlanta/Magnús Sigurðsson

Þetta er í fyrsta sinn sem flugfélag í eigu Íslendinga rekur flugvél af þessari tegund en hún tekur nærri fimmhundruð farþega í sæti, þessi nánar tiltekið 494. Hún er almennt talin helsti arftaki Boeing 747.

Triple Seven, eða þrefalda sjöan, skipar þann sess að vera stærsta tveggja hreyfla þota sögunnar. Hún er núna jafnframt stærsta flugvél heims í fjöldaframleiðslu eftir að smíði 747 og Airbus A380 var hætt.

Tólf hjól eru á aðalhjólastellum Boeing 777, sex hjól hvoru megin.Air Atlanta/Magnús Sigurðsson

Atlanta-flugfélagið verður í sumar með átján breiðþotur í rekstri, þar af fimm í farþegaflugi. Sextán þotur eru af gerðinni Boeing 747-400 en tvær af gerðinni Boeing 777-300. Starfsmenn félagsins, sem er með höfuðstöðvar í Kópavogi, eru núna um 600 talsins. Þar af eru um 250 Íslendingar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar

Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar.

Air Atlanta sendir þrjár júmbó-þotur í niðurrif

Forsvarsmenn Flugfélagsins Air Atlanta hafa ákveðið að láta rífa þrjár af sjö Boeing 747-400 farþegaþotum félagsins. Þoturnar eru á bilinu 18 til 23 ára gamlar og hafa að undanförnu verið í þjónustu Saudia-flugfélagsins, ríkisflugfélags Sádi-Arabíu.

Atlanta stofnar nýtt flugfélag á Möltu

Forsvarsmenn íslenska Flugfélagsins Atlanta ehf. hafa ákveðið að stofna nýtt flugfélag á Möltu, sem hlotið hefur nafnið Air Atlanta Europe.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×