Fella niður mál gegn mexíkóskum ráðherra í Bandaríkjunum Kjartan Kjartansson skrifar 18. nóvember 2020 15:47 Teikning af Salvador Cienfuegos í réttarsal í Los Angeles. Hann er nú laus undan ákærum í Bandaríkjunum. AP/Bill Robles
Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur fellt niður ákærur á hendur fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um stórfellt fíkniefnasmygl og peningaþvætti og ætlar að framselja hann til heimalandsins. Framsalið er með skilyrði um að mexíkósk yfirvöld rannsaki hann og sæki til saka eftir atvikum. Salvador Cienfuegos, fyrrverandi hershöfðingi og varnarmálaráðherra Mexíkó, var handtekinn við komuna til Los Angeles í síðasta mánuði. Hann var meðal annars ákærður fyrir að hafa aðstoðað fíkniefnahringinn H-2 við að smygla þúsundum kílóa af kókaíni, heróíni, metafmetamíni og maríjúana á meðan hann var ráðherra frá 2012 til 2018. Þá voru lögð fram sannanir fyrir því að Cienfuegos hefði beitt áhrifum sínum sem ráðherra til að halda hlífiskildi yfir glæpagenginu og beinst löggæslustofnunum frekar á spor keppinauta þess. Þetta hafi hann gert í skiptum fyrir mútugreiðslur. William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að ákærurnar hefðu verið felldar niður svo hægt verði að rannsaka Cienfuegos og ákæra ef tilefni þykir til í Mexíkó, að sögn AP-fréttastofunnar. Ákvörðunin væri tekin í ljós „sterks samstarfs“ ríkjanna í löggæslumálum og til að sýna að ríkin væru samstíga gegn glæpum af öllum toga. Marcelo Ebrard, utanríkisráðherra Mexíkó, sagði í dag að ríkisstjórn hans hefði mótmælt því að hafa ekki verið látin vita af því að Cienfuegos væri til rannsóknar í Bandaríkjunum og krafist þess að fá sönnunargögn gegn honum. „Við sjáum þetta ekki sem leið til refsileysis heldur frekar sem virðingarvott við Mexíkó og herafla Mexíkó,“ sagði Ebrard í dag. Cienfuegos (t.v.) var ráðherra í fyrrverandi ríkisstjórn Enrique Peña Nieto (t.h.).AP/Rebecca Blackwell Telur ákvörðunina gjöf Trump til forseta Mexíkó Bandarískur dómari þarf enn að fallast á samkomulag bandarískra og mexíkóskra yfirvalda. Alríkissaksóknari í málinu sagði að það væri í þágu almannahagsmuna í Bandaríkjunum að fella ákærurnar niður. Utanríkishagsmunir vægju þyngra en hagsmunir þess að Cienfuegos yrði sóttur til saka. Þegar Cienfuegos var handtekinn í október vöruðu saksóknarar við því að mikil hætta væri á að hann flýði land og reyndi að notfæra sér sambönd sín við glæpagengið og aðra spillta embættismenn til að koma sér undan saksókn í Bandaríkjunum. Mike Vigil, fyrrverandi yfirmaður alþjóðamála hjá Fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna (DEA), segir ákvörðun bandarískra yfirvalda ekkert annað en „gjöf“ Donalds Trump til Andrés Manuel López Obrador, forseta Mexíkó. Hún gæti verið fyrsta málið þar sem Trump beitir valdi sínu til að náða menn eða fella niður rannsóknir á lokavikum forsetatíðar sinnar. Bendir Vigil á að López Obrador hafi verið Trump undirgefinn í innflytjendamálum og hafi til þessa dregið að óska Joe Biden, verðandi forseta, til hamingju með kosningasigur sinn. Trump forseti hefur neitað að viðurkenna ósigur. „Líkurnar á að Cienfuegos verði sakfelldur í Mexíkó eru litlar sem engar,“ segir Vigil og vísar til þess að Cienfuegos sé vel tengdur í mexíkóskum stjórnmálum. Ebrard utanríkisráðherra neitaði því að samkomulagið tengdist nokkuð forsetakosningunum í Bandaríkjunum og yfirvofandi stjórnarskiptum í Bandaríkjunum.
Mexíkó Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Saka mexíkóska ráðherrann um mútuþægni og stórfellt fíkniefnasmygl Bandarískir saksóknarar saka fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um að hafa aðstoðað við smygl á þúsundum kílóa af fíkniefnum til Bandaríkjanna gegn mútum. 16. október 2020 23:19 Fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó handtekinn í Bandaríkjunum Bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) handtók Salvador Cienfuegos á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles í gær. 16. október 2020 07:55 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira
Saka mexíkóska ráðherrann um mútuþægni og stórfellt fíkniefnasmygl Bandarískir saksóknarar saka fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó um að hafa aðstoðað við smygl á þúsundum kílóa af fíkniefnum til Bandaríkjanna gegn mútum. 16. október 2020 23:19
Fyrrverandi varnarmálaráðherra Mexíkó handtekinn í Bandaríkjunum Bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) handtók Salvador Cienfuegos á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles í gær. 16. október 2020 07:55