Leyft að selja gamlar birgðir: „Þetta verður ekki flutt aftur til landsins“ Eiður Þór Árnason skrifar 11. janúar 2022 17:22 Cocoa Puffs birgðir landsins eru nú að skornum skammti. Vísir/Vilhelm Hagkaup fékk nýlega heimild hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja síðustu pakkana sína af Cocoa Puffs. Þeir höfðu safnað ryki í vöruhúsi eftir að tilkynnt var að ekki væri lengur heimilt að selja morgunkornið á Íslandi. Vörurnar voru fluttar til landsins síðasta sumar og hefðu að óbreyttu verið urðaðar. „
Það hefur staðið styr um túlkunaratriði, hvað er bannað í þessu og hvað ekki, og menn ekki allir sammála. Þess vegna voru þessar vörur settar á frost í haust og ekki seldar á amerískum dögum á meðan við kláruðum samtalið við heilbrigðiseftirlitið,“ segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, í samtali við Vísi. „Þetta verður nú ekki aftur flutt inn til landsins og til að minnka matarsóun þá fengum við heimild til að selja þær birgðir sem voru komnar inn til landsins og þess vegna fór þetta núna tímabundið í sölu,“ bætir hann við. Birgðirnar séu nú við það að klárast. Sigurður segir málið vera flókið og ekki á allra valdi að skilja um hvað málið raunverulega snúist. Líkt og Vísir greindi frá í október kom fram í bréfi sem framleiðandinn General Mills sendi íslenska heildsalanum Nathan & Olsen í mars að ný uppskrift Cocoa Puffs og Lucky Charms innihéldi náttúruleg litarefni sem væru hér óleyfileg samkvæmt gildandi reglugerðum um aukaefni á Evrópska efnahagssvæðinu. Ekki er tilgreint hvaða efni nákvæmlega málið snýst um og telja sumir kaupmenn ósennilegt að um raunverulegt bannefni sé að ræða. Ósamræmi milli sveitarfélaga „Við höfum reynt að leita eftir einhverjum upplýsingum og reynt að átta okkur á þessu og sækja hvað það er sem menn eru að segja að sé ólöglegt, því við getum ekki seð það sjálfir með okkar sérfræðingum. Þetta er í einhverjum snúningi en lokavaldið er bara hjá heilbrigðiseftirlitinu sem stendur fast á því að þetta sé svona og við það þurfum við að búa,“ segir Sigurður. Athygli vekur að Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja túlkar málið öðruvísi en eftirlitsaðilar í Reykjavík og hætti að gera athugasemd við sölu Samkaupa á Cocoa Puffs eftir að verslanakeðjan leiðrétti þýdda innihaldslýsingu sem límd var á umbúðirnar. Samkaup eru með höfuðstöðvar í Reykjanesbæ og reka meðal annars verslanir undir merkjum Nettó, Iceland og Kjörbúðarinnar. Fulltrúi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sagði í samtali við Vísi í október að þeirra sölubann byggi einfaldlega á áðurnefndri yfirlýsingu framleiðandans þar sem fram komi að ekki sé lengur heimilt að selja vöruna á Evrópska efnahagssvæðinu. Það kæmi ekki í hlut eftirlitsins að óska eftir frekari skýringum. Ítarlega var fjallað framtíð súkkulaðimorgunkornsins á Íslandi í október.
Matur Verslun Neytendur Tengdar fréttir ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. 19. apríl 2021 15:44 Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31. mars 2021 13:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Hvað er opið um páskana? Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði leiki nú lausum hala Fólk sæki bætur sjálft til að sleppa við „blóðuga“ þóknun Gapandi yfir gjörbreyttu frumvarpi og varar við því Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Dældu skemmdri díselolíu á bíla sína Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Landsbankinn lækkar vexti Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Gerði ekki gott mót og dæmdur til að veita afslátt Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Sjá meira
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. 19. apríl 2021 15:44
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31. mars 2021 13:58