Ingibjörg skoraði fyrsta markið þegar Vålerenga fór áfram í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2020 12:51 Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði fyrsta mark leiksins en hún spilar í vörninni. Getty/VI Images
Íslenska landsliðskonan Ingibjörg Sigurðrdóttir var á skotskónum í 7-0 sigri Vålerenga á litháenska liðinu Gintra-Universitetas í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í dag. Vålerenga er því eitt af 32 liðunum sem verða í pottinum þegar útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar hefst. Ingibjörg Sigurðrdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 19. mínútu og kom sínu liði á blað. Ingibjörg skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu frá hinni hollensku Sherida Spitse. 18 min. MÅL! Corner fra høyre, Sherida Spitse slår inn og der kommer Ingibjørg Sigurdardottir stormende og setter pannebrasken til kula som fyker inn i nettmaskene. 0-1. Deilig!— Vålerenga Fotball Kvinner (@VIFDamer) November 19, 2020 Hin danska Rikke Madsen kom Vålerenga í 2-0 á 33. mínútu og þriðja markið í uppbótatíma fyrri hálfleiks var líklega sjálfsmark þó að UEFA skrái það á hina serbnesku Dejönu Stefanović. UEFA-síðan skráði líka stoðsendingu á Ingibjörgu í þriðja markinu en Twitter-síða Vålerenga er ekki alveg sammála því. Það er mikið í gangi hjá liðinu þessa dagana enda Vålerenga liðið að keppa á þremur vígstöðvum. Þjálfarinn gat því leyft sér að hvíla Ingibjörgu og hann tók hana því af velli í hálfleik. Dejana Stefanović, Ajara Nchout og Synne Jensen bættu við mörkum í seinni hálfleiknum auk þess að Gintra skoraði eitt sjálfsmark og Vålerenga vann því á endanum stórsigur. Cloé Eyja Lacasse og félagar í Benfica komust líka áfram í 32 liða úrslitin með 2-1 útisigri á Anderlecht í Belgíu í gær. Nycole Raysla skoraði bæði mörkin fyrir Benfica liðið. Í 32 liða úrslitunum eru Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í franska liðinu Lyon sem og Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í sænska liðinu Rosengård. María Þórisdóttir og Chelsea liðið er einnig í pottinum. Þar verður líka skoska liðið Glasgow City sem vann Val í vítakeppni á Hlíðarenda í gær.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti Leik lokið: Keflavík - Álftanes 88-84 | Keflvíkingar tóku forystuna í hörkuleik Körfubolti Leik lokið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Íslenski boltinn Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Fleiri fréttir ÍA kynnir Rúnar Má til leiks Leik lokið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjörnumenn komnir á blað Martínez missir af fyrri undanúrslitaleiknum vegna leikbanns Albert komst ekki á blað gegn Lazio Íslandsmeistararnir sóttu bakvörð til Bandaríkjanna Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Xabi Alonso tók metið af Conte Sería A örugg með fimm Meistaradeildarsæti Besta-spáin 2024: Brakar í heila prófessorsins Nagelsmann framlengir samning sinn við þýska landsliðið Besta-spáin 2024: Nálgast núllpunktinn á ný Hafi ekki séð styrkleika sína nægilega vel Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Rómverjar svífa um á bleiku skýi De Rossi Liverpool úr leik þrátt fyrir sigur á Ítalíu Leverkusen neitar að tapa Hákon Arnar lagði upp þegar Lille féll úr leik eftir vítaspyrnukeppni Markadrottningin mun ná þrettán árum hjá franska félaginu Hjartað var ekki vandamálið þegar Roma maðurinn hneig niður Slakt gengi City, Arsenal og Liverpool í Evrópu slæmar fréttir fyrir United Sjáðu ótrúlega vítakeppni gærkvöldsins: „Vá hvað þetta var skrýtið“ Neville orðlaus: „Var þetta gert opinbert á sínum tíma?“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Tindastóll 91-89 | Íslandsmeisturunum sópað úr leik í Smáranum Körfubolti