Þjarma að heilbrigðisráðherra um skaðaminnkun Árni Sæberg skrifar 1. júní 2023 13:30 Arndís Anna ætlar að þjarma að heilbrigðisráðherra ásamt flokksfélögum sínum í dag. Vísir/Vilhelm Píratar munu krefja heilbrigðisráðherra svara við spurningum um skaðaminnkun, sem snýr að því að mæta vímuefnaneytendum á þeirra forsendum, í sérstakri umræðu um málefnið á þingfundi í dag.
Sérstök umræða um skaðaminnkun hefst klukkan 14 á Alþingi í dag. Málshefjandi er Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, og til andsvara verður heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson. Hægt er að fylgjast með umræðunni hér að neðan: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, flokkssystir Halldóru, segir að Píratar vonist til þess að koma umræðunni um skaðaminnkun aftur af stað, en ákveðin ládeyða hafi verið í henni undanfarið. „Við vonumst til þess að fá svör við ákveðnum spurningum, og auðvitað koma umræðunni aftur af stað. Hún var komin mjög langt fyrir ekki löngu síðan en það virðist hafa komið einhvers konar bakslag eða stöðnun í þessa umræðu, sem við teljum mjög brýna. Þær spurningar sem við munum beina til ráðherra eru til að mynda hvernig ráðherra skilgreinir skaðaminnkun,“ segir hún. Vilja vita við hvað starfshópur starfar Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um skaðaminnkun og Píratar vilja svör við því hvert hlutverk starfshópsins er nákvæmlega. „Og svo er það mikilvægustu spurningar, hvort ráðherra telji skaðaminnkun geta skilað árangri án afglæpavæðingu neysluskammta,“ segir hún. Willum Þór tók boðað frumvarp sitt um afglæpavæðingu neysluskammta af dagskrá þingsins fyrir skömmu. Arndís Anna segir það bagalegt í ljósi þess hversu margir hafa látist vegna ofneyslu fíkniefna síðustu misseri. „Svo væri áhugavert að fá svör við því hvaða árangri þessi bannstefna hefur skilað í þágu einstaklinga sem eiga við fíknivanda að stríða,“ segir Arndís Anna og bætir við að Píratar telji afglæpavæðingu, sem gangi meðal annars út á það að fólk geti leitað sér hjálpar vegna ofskömmtunar án þess að óttast viðurlög, gríðarlega mikilvæga. „Það er þannig að þegar þú ert með neysluskammt á þér þá ertu brotlegur við lög og það er svolítið erfitt að sjá fyrir sér hvernig heilbrigðisráðherra ætlar að tryggja það að fólk fái aðstoð og koma í veg fyrir dauðsföll, sem eru orðin skelfilega algeng,“ segir Arndís Anna.
Alþingi Píratar Fíkn Fíkniefnabrot Tengdar fréttir Hittir æskuvinina bara í svörtum fötum: „Við erum búnir að fara í fleiri jarðarfarir en útskriftir“ Skaðaminnkunarsinni segir þungan anda yfir vímuefnaneytendum og aðstandendum vegna frétta af ofskömmtunum. Sjálfur segist hann aðallega hitta æskuvini sína í jarðarförum þessa dagana. Hann telur aðgerðir sem heilbrigðisráðherra kynnti nýverið sem viðbragð við ópíóðafaraldrinum ekki ganga nógu langt. 12. maí 2023 06:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Erlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira
Hittir æskuvinina bara í svörtum fötum: „Við erum búnir að fara í fleiri jarðarfarir en útskriftir“ Skaðaminnkunarsinni segir þungan anda yfir vímuefnaneytendum og aðstandendum vegna frétta af ofskömmtunum. Sjálfur segist hann aðallega hitta æskuvini sína í jarðarförum þessa dagana. Hann telur aðgerðir sem heilbrigðisráðherra kynnti nýverið sem viðbragð við ópíóðafaraldrinum ekki ganga nógu langt. 12. maí 2023 06:01