Man City þarf ekki að vinna Meistaradeildina til að sanna að það sé meðal stærstu félaga heims Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. apríl 2021 10:30 Pep vill fara lengra í Meistaradeildinni en Man City hefur tekist undanfarin ár. Manchester City/Getty Images Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, segir félagið ekki þurfa að vinna Meistaradeildina til að sýna fram á að félagið sé eitt af þeim stærstu í heimi. Það mætir Borussia Dortmund í 8-liða úrslitum í kvöld. Þrátt fyrir gott gengi í Englandi undanfarin ár hefur Manchester City ekki komist nálægt því að vinna Meistaradeild Evrópu. Á meðan Man City er með níu fingur á enska meistaratitlinum er Dortmund í stökustu vandræðum með að komast upp í Meistaradeildarsæti í Þýskalandi en liðin mætast eins og áður sagði í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lærisveinar Pep ættu að eiga greiða leið í undanúrslit keppninnar en félagið hefur runnið á álíka bananahýðum í gengum tíðina. Til að mynda gegn Lyon á síðustu leiktíð. Á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins tók Pep fyrir að City yrði að vinna Meistaradeildina til að komast í sama flokk og stærstu félög í heimi, félagið væri nú þegar þar. „Við erum nú þegar stórt félag. Auðvitað vilja allir hér, ég og leikmennirnir, gera betur en við höfum gert í Meistaradeildinni til þessa. Við viljum það en það mun ekki gerast ef við spilum ekki vel,“ sagði Pep á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld. „Undirbúningurinn fyrir leikinn er sá sami og fyrir síðasta leik og þar á undan. Sá sami og síðustu tvo til fjóra mánuði. Á endanum er þetta fótboltaleikur þar sem 11 leikmenn mæta 11 leikmönnum og við munum gera allt sem við getum til að komast áfram,“ bætti hann við. Pep ræddi einnig þá staðreynd að félagið hefði til þessa ákveðið að eyða ekki 100 milljónum punda í einn leikmann en það gæti þó breyst í framtíðinni. Mikil umræða hefur skapast í kringum Man City og Jack Grealish. Talið er að Aston Villa vilji 100 milljónir fyrir leikmanninn og því var svar Pep forvitnilegt fyrir margar sakir. Varðandi tapið gegn Lyon í fyrra „Sá leikur var í höfðinu á mér í margar vikur. Það var mjög sársaukafullt. Þetta var síðasti leikurinn á tímabilinu og við vildum fara áfram. Við óskuðum Lyon til hamingju og sættum okkur við þá staðreynd að við hefðum ekki spilað nægilega vel. Eftir nokkra daga vaknaði maður og fór að undirbúa næstu leiktíð. Hingað erum við komnir á nýjan leik og munum reyna aftur.“ Leikur Manchester City og Borussia Dortmund í kvöld er í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18.45 en Real Madrid mætir Liverpool í hinum leiknum. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Sjá meira
Þrátt fyrir gott gengi í Englandi undanfarin ár hefur Manchester City ekki komist nálægt því að vinna Meistaradeild Evrópu. Á meðan Man City er með níu fingur á enska meistaratitlinum er Dortmund í stökustu vandræðum með að komast upp í Meistaradeildarsæti í Þýskalandi en liðin mætast eins og áður sagði í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lærisveinar Pep ættu að eiga greiða leið í undanúrslit keppninnar en félagið hefur runnið á álíka bananahýðum í gengum tíðina. Til að mynda gegn Lyon á síðustu leiktíð. Á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins tók Pep fyrir að City yrði að vinna Meistaradeildina til að komast í sama flokk og stærstu félög í heimi, félagið væri nú þegar þar. „Við erum nú þegar stórt félag. Auðvitað vilja allir hér, ég og leikmennirnir, gera betur en við höfum gert í Meistaradeildinni til þessa. Við viljum það en það mun ekki gerast ef við spilum ekki vel,“ sagði Pep á blaðamannafundi fyrir leikinn í kvöld. „Undirbúningurinn fyrir leikinn er sá sami og fyrir síðasta leik og þar á undan. Sá sami og síðustu tvo til fjóra mánuði. Á endanum er þetta fótboltaleikur þar sem 11 leikmenn mæta 11 leikmönnum og við munum gera allt sem við getum til að komast áfram,“ bætti hann við. Pep ræddi einnig þá staðreynd að félagið hefði til þessa ákveðið að eyða ekki 100 milljónum punda í einn leikmann en það gæti þó breyst í framtíðinni. Mikil umræða hefur skapast í kringum Man City og Jack Grealish. Talið er að Aston Villa vilji 100 milljónir fyrir leikmanninn og því var svar Pep forvitnilegt fyrir margar sakir. Varðandi tapið gegn Lyon í fyrra „Sá leikur var í höfðinu á mér í margar vikur. Það var mjög sársaukafullt. Þetta var síðasti leikurinn á tímabilinu og við vildum fara áfram. Við óskuðum Lyon til hamingju og sættum okkur við þá staðreynd að við hefðum ekki spilað nægilega vel. Eftir nokkra daga vaknaði maður og fór að undirbúa næstu leiktíð. Hingað erum við komnir á nýjan leik og munum reyna aftur.“ Leikur Manchester City og Borussia Dortmund í kvöld er í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18.45 en Real Madrid mætir Liverpool í hinum leiknum. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Sófasunnudagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Sjá meira