Tveir leikir Arons á sama sólarhringnum

Aron Pálmarsson í leik með Barcelona.
Aron Pálmarsson í leik með Barcelona. Ljósmynd/Barcelona

Aron Pálmarsson og félagar í handknattleiksliði Barcelona léku í dag annan leikinn á sama sólarhringnum þegar þeir tóku á móti Benidorm í spænsku 1. deildinni í dag.

Leiknum var frestað á dögunum vegna kórónuveirusmits í röðum Barcelona. Í gærkvöld lék liðið við Aalborg í Meistaradeild Evrópu og vann góðan sigur, 42:33, þar sem Aron var mjög áberandi, skoraði fimm mörk og átti fimm stoðsendingar.

Hann tók því hinsvegar rólega í dag og skoraði eitt mark í stórsigri Barcelona, 43:29. Barcelona vann þar með sinn áttunda sigur í fyrstu átta leikjunum og er með 16 stig á toppi deildarinnar en Bidasoa, Granollers og Valladolid eru öll með 12 stig. Bidasoa hefur unnið alla sína leiki eins og Barcelona en hefur aðeins spilað sex leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert