Tvöfalt fleiri milljónir fyrir Ísland á EM Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2021 10:01 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir í leiknum við Holland í undankeppni HM á þriðjudagskvöld. Þær eru á leið á EM í Englandi næsta sumar. vísir/hulda margrét Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun njóta góðs af því að ákveðið hefur verið að tvöfalt hærra verðlaunafé verði í boði á EM í Englandi næsta sumar en á EM í Hollandi árið 2017.
Ísland er eitt af sextán landsliðum sem leika á EM og verður þetta fjórða Evrópumót íslenska liðsins í röð. Á EM 2017 í Hollandi var samtals 8 milljónum evra útdeilt á milli þátttökuliðanna, eftir árangri. Lið eins og Ísland sem féllu úr leik í riðlakeppninni fengu 300.000 evrur í sinn hlut hvert. Sú upphæð jafngildir í dag rúmlega 45 milljónum króna sem var sjálfsagt í ljósi kostnaðar við þátttöku á EM engin sérstök búbót fyrir KSÍ. Til samanburðar fengu lið að lágmarki 1,4 milljarða króna fyrir að spila á EM karla í sumar. Liðin sem leika á EM kvenna næsta sumar deila með sér tvöfalt hærra verðlaunafé en 2017, eða 16 milljónum evra (2,4 milljörðum króna), samkvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar UEFA í gær. Á næstu dögum skýrist nákvæmlega hvernig verðlaunafénu verður skipt niður. Ljóst er þó að lágmarksupphæð verður hærri en 300.000 evrur og að hægt verður að fá bónusa fyrir að vinna leiki eða gera jafntefli í riðlakeppninni, þó að lið komist ekki áfram í 8-liða úrslit. Íslensk félög fá bætur vegna leikmanna sem spila á EM Þá munu knattspyrnufélög sem landsliðskonurnar á EM eru á mála hjá í fyrsta sinn fá bætur frá UEFA vegna þátttöku þeirra á mótinu. Heildarupphæðin sem greidd verður í slíkar bætur nemur 4,5 milljónum evra, jafnvirði 684 milljóna króna. Agla María Albertsdóttir er á mála hjá Breiðabliki og gæti tryggt félaginu tæpar 2 milljónir króna með því að fara á EM.vísir/hulda margrét Í ljósi þess að 23 leikmenn verða í hverjum landsliðshópi, eða samtals 368 leikmenn á mótinu, má ætla að þetta þýði bætur upp á hátt í 2 milljónir króna fyrir hvern leikmann. Ljóst er að Breiðablik, Valur og jafnvel fleiri íslensk félög koma til með að hagnast á þessu.
EM 2021 í Englandi Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tap Hákons tefur fögnuð PSG Sjá meira