Gætu tekið af rafmagn hjá milljón manna til að draga úr eldhættu Kjartan Kjartansson skrifar 24. október 2020 10:08 Starfsmaður Pacific Gas & Electric fylgist með Creek-gróðureldinum í Kaliforníu í september. Slíkir eldar kvikna oft þegar rafmagnsstaurar brotna eða línur slitna þegar þurrt og hvasst er í veðri. AP/Marcio Jose Sanchez
Orkufyrirtæki í Kaliforníu gæti tekið rafmagn af hjá allt að milljón viðskiptavinum sínum um helgina til að draga úr hættu á frekari gróðureldum. Spáð er sérstaklega eldfimum aðstæðum, þurrki og hvassviðri víða í Kaliforníu fram í næstu viku. Gróðureldar í Kaliforníu í ár eru þegar þeir verstu sem sögur fara af. Sambland af miklum hita, þurrki og sterkum vindum sköpuðu aðstæður þar sem eldar gátu kviknað og breitt úr sér með ógnarhraða. Oft hafa slíkir eldar kviknað út frá slitnum rafmagnslínum. Tekist hefur að ná tökum á öllum stærstu eldunum sem kviknuðu í lok sumars og byrjun hausts. Engu að síður glíma þúsundir slökkviliðsmanna enn við nítján elda. Veðuraðstæður nú eru sagðar þær eldfimustu á gróðureldatímabilinu til þessa. Því varar Pacific Gas & Electric, helsta orkufyrirtæki Kaliforníu, við því að það gæti tekið rafmagn af hátt í hálfri milljón heimila í 38 sýslum, þar á meðal stærstum hluta San Francisco-flóans. Byrjað yrði að taka rafmagnið af í fyrramálið og gæti rafmagnsleysið varað fram á þriðjudag, að sögn AP-fréttastofunnar. Varúðarástandi vegna eldhættu hefur verið lýst yfir víða. Spáð er vindstyrk um 15 metrum á sekúndu eða meira í San Francisco og enn meiri í fjöllum. „Á skalanum einn til tíu er þessi atburður upp á níu. Sögulega eru stærstu eldarnir okkar í október. Við erum á hættulegu tímabili,“ segir Craig Clements, forstöðumaður gróðureldarannsókna hjá San José-ríkisháskólanum. AP segir að átta af tíu mannskæðustu eldum í sögu Kaliforníu hafi orðið í október eða nóvember. Aðstæður sunnar í Kaliforníu eru sagðar skaplegri. Þar hefur kólnað í veðri og gengur á með örlítilli úrkomu. Loftslagsbreytingar eru sagðar eiga þátt í að auka gróðureldahættu í Kaliforníu og víðar. Þurrara og hlýrra loftslag hefur valdið því að tré og annar gróður er eldfimara en ella.
Gróðureldar í Kaliforníu Loftslagsmál Bandaríkin Tengdar fréttir Slökkviliðsmenn sýna gífurlega erfiðar aðstæður Slökkvilið Alamedasýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum birti í gær myndband af aðstæðunum sem slökkviliðsmenn vinna nú við í ríkinu. 1. október 2020 13:52 Fingraför manna alls staðar á gróðureldunum vestanhafs Loftslagsbreytingar af völdum manna sköpuðu aðstæðurnar sem hafa gert gróðureldana miklu í vestanverðum Bandaríkjunum enn verri en ella. Fleiri mannanna verk hafa þó stuðlað að alvarleika eldanna, þar á meðal umhirða skóga og skipulag byggðar. 19. september 2020 09:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira
Slökkviliðsmenn sýna gífurlega erfiðar aðstæður Slökkvilið Alamedasýslu í Kaliforníu í Bandaríkjunum birti í gær myndband af aðstæðunum sem slökkviliðsmenn vinna nú við í ríkinu. 1. október 2020 13:52
Fingraför manna alls staðar á gróðureldunum vestanhafs Loftslagsbreytingar af völdum manna sköpuðu aðstæðurnar sem hafa gert gróðureldana miklu í vestanverðum Bandaríkjunum enn verri en ella. Fleiri mannanna verk hafa þó stuðlað að alvarleika eldanna, þar á meðal umhirða skóga og skipulag byggðar. 19. september 2020 09:00