Heilbrigðisráðherra herðir tökin á landamærunum Eiður Þór Árnason skrifar 5. maí 2021 15:03 Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Frá og með föstudeginum verður tekið mið af hlutfalli jákvæðra Covid-19 sýna í brottfaralandi við mat á því hvaða lönd eða svæði teljast til hááhættusvæða. Áður var einungis miðað við nýgengi smita en skilgreining hááhættusvæða ræður því hvaða farþegar þurfa að sæta sóttkví í sóttvarnahúsi við komuna til landsins.
Með breytingunni verður farþegum frá 131 landi eða svæði gert að dvelja í sóttvarnahúsi með möguleika á undanþágu ef þeir geta uppfyllt skilyrði sóttkvíar á öðrum stað. Áður náði krafan til farþega frá sextán löndum en hún nær ekki til þeirra sem hafa vottorð um bólusetningu eða fyrra smit. Samkvæmt nýuppfærðu mati heilbrigðisyfirvalda þurfa farþegar án vottorðs frá alls sautján löndum að dvelja skilyrðislaust í sóttvarnahúsi við komuna til landsins á meðan beðið er niðurstöðu seinni sýnatöku. Eru það Andorra, Argentína, Barein, Frakkland, Grænhöfðaeyjar, Holland, Króatía, Kýpur, Litháen, Pólland, Seychelles-eyjar, Serbía, meginland Spánar, Svíþjóð, Tyrkland, Ungverjaland og Úrúgvæ. Þetta kemur fram í nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra sem öðlast gildi 7. maí og gildir til 24. maí. Nýgengi ekki talið gefa fullnægjandi mynd Samkvæmt nýrri reglugerð verður því bæði horft til upplýsinga um 14 daga nýgengi smita á hverja 100.000 íbúa og hlutfall jákvæðra sýna í viðkomandi landi við skilgreiningu á hááhættusvæðum. Segir í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins að með breytingunni sé byggt á því að nýgengið veiti ekki eitt og sér fullnægjandi mynd af útbreiðslu samfélagssmita. Ef hlutfall jákvæðra sýna sé hátt bendi það til þess að samfélagssmit sé útbreiddara en tölur um nýgengi benda til. Áfram þurfa farþegar sem koma frá landi eða svæði þar sem nýgengi smita er 700 eða meira að fara skilyrðislaust í sóttkví í sóttvarnahúsi. Þetta á nú einnig við ef nýgengi smita er á bilinu 500–699 og hlutfall jákvæðra sýna er 5% eða hærra, eða ef nýgengi er yfir 500 en fullnægjandi upplýsingar um hlutfall jákvæðra sýna liggur ekki fyrir. Einungis er vikið frá þessari kröfu ef veigamiklar ástæður mæla með því, svo sem fötlun, þroski eða sambærilegar aðstæður þess sem hlut á að máli. Ef nýgengið er minna en 500 þurfa komufarþegar ekki að sæta sóttkví í sóttvarnahúsi og sé það á bilinu 500 til 699 er sóttkví í sóttvarnahúsi áskilin en hægt að sækja um undanþágu frá þeirri kröfu. 131 land eða svæði tilheyra nú síðastnefnda flokknum líkt og áður segir og má sjá listann í auglýsingu ráðherra. Sækja þarf um undanþáguna að minnsta kosti tveimur sólarhringum fyrir komu til landsins. Núverandi heimild stjórnvalda til að skylda farþega frá ákveðnum löndum til að dveljast í sóttkvíarhúsi gildir til 30. júní. Færeyjar og Grænland einu löndin á lágáhættulista Sem fyrr þurfa þeir sem framvísa vottorði um bólusetningu eða fyrra smit aðeins að fara í eina sýnatöku við komuna til landsins. Farþegar frá Færeyjum verða undanþegnir sóttvarnaaðgerðum á landamærum frá og með 10. maí næstkomandi og þurfa því hvorki að framvísa vottorðum né sæta sýnatöku og sóttkví. Þetta á þegar við um farþega frá Grænlandi. Þar með verða þau einu löndin á lágáhættulista sóttvarnalæknis.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Hótel Klettur nýtt sóttkvíarhótel frá og með deginum í dag Í dag opnar Rauði krossinn nýtt sóttkvíarhótel á Hótel Kletti við Mjölnisholt í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum en hótelið er það þriðja í Reykjavík sem notað verður í þessum tilgangi og það fjórða á landinu öllu. 2. maí 2021 11:52 Telja Ísland öruggasta áfangastaðinn í heimsfaraldri Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri. 2. maí 2021 20:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Fleiri fréttir Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Sjá meira
Hótel Klettur nýtt sóttkvíarhótel frá og með deginum í dag Í dag opnar Rauði krossinn nýtt sóttkvíarhótel á Hótel Kletti við Mjölnisholt í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum en hótelið er það þriðja í Reykjavík sem notað verður í þessum tilgangi og það fjórða á landinu öllu. 2. maí 2021 11:52
Telja Ísland öruggasta áfangastaðinn í heimsfaraldri Hundrað og þrjátíu ferðamenn frá Bandaríkjunum, langflestir bólusettir, lentu á Keflavíkurflugvelli í dag. Þeir hafa sumir beðið í rúmt ár eftir Íslandsferðinni og eru sammála um að landið sé öruggur áfangastaður í heimsfaraldri. 2. maí 2021 20:01