„Galið að fara svona með opinbert fé“ Jakob Bjarnar skrifar 27. mars 2024 11:43 Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri i Hafnarfirði segir galið að setja 14 milljónir í verkefni sem þetta. vísir/vilhelm Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, gagnrýnir harðlega samning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Höllu Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa. „
Þetta rann ekki beint smurt í gegn. En það var augljóst að það var búið að ákveða að svona yrði þetta fyrir fundinn. Það var ekkert hlustað á okkur þegar við hreyfðum við mótmælum,“ segir Rósa. Illa farið með fé almennings Vísir greindi frá því í morgun að SÍS hafi gert samning við Höllu Gunnarsdóttur um að hún myndi setja saman ferla sem gangi út á að taka við kvörtunum vegna „kjörinna áreitara og ofbeldisseggja,“ eins og segir í bréfi Höllu þar sem hún lýsir því hvað hún ætli að gera og hvað hún fái greitt. Hún segist vilja fá 23 þúsund krónur á tímann, aðstoðarmann og skrifstofuaðstöðu hjá sambandinu. Rósa segir að svona nokkuð sé hægt að vinna með miklu hagkvæmari hætti. „Það er verið að ætla alltof háa upphæð í þetta og tíma. Það er galið að setja 14 milljónir í verkefni sem þetta. Og það er galið að fara svona með peninga almennings.“ Lyktar af pólitískri fyrirgreiðslu Rósa segir að til standi að greiða þennan reikning með fé úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem sé sérstakt. „Þarna er illa farið með fé skattgreiðenda. Það hversu ákveðið þetta fór í gegn ber í mínum huga dám af pólitískri fyrirgreiðslu. Það er galið að fara svona með fjármuni. Og tíminn sem ætlaður er í þetta, hann bara stenst ekki.“ Rósa segir þetta ekki í nokkru samhengi við það sem hún þekki af svipuðum málum. „Heima í héraði hefði maður fengið mannauðsstjóra og/eða öfluga sviðstjóra til að vinna svona mál. Ég man ekki eftir svona upphæðum þegar maður hefur þurft á aðkeyptri ráðgjöf að halda.“
Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Kynferðisofbeldi Rekstur hins opinbera Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira