Truflaði ekki rekstur virkjunar ON

Vel þekkt er að jarðhitanýting getur haft áhrif á skjálftavirkni …
Vel þekkt er að jarðhitanýting getur haft áhrif á skjálftavirkni á vinnslusvæðum og nærri þeim og reynslan á Hengilssvæðinu sýnir að stundum fylgir aukin virkni breytingum í rekstri virkjana Ljósmynd/ ON

Engin breyting varð á rekstri Orku náttúrunnar í aðdraganda jarðskjálftanum sem varð á Hengilssvæðinu, en í virkjun ON er unnið rafmagn fyrir alla landshluta og heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu.

Skjálftinn mældist á tæplega 8 km dýpi sem er með því allra dýpsta sem við höfum séð á þessu svæði. Mjög ólíklegt er að vinnsla ON hafi áhrif á þessu dýpi,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. 

Orkuvinnsla á Hengilssvæðinu á sér um 30 ára sögu og mikið magn jarðhitavökva er tekið upp úr jarðhitakerfinu og dælt niður aftur eftir nýtingu þess í virkjunum. 

Mældist 5,1 hjá ON

Vel þekkt er að jarðhitanýting getur haft áhrif á skjálftavirkni á vinnslusvæðum og nærri þeim og reynslan á Hengilssvæðinu sýnir að stundum fylgir aukin virkni breytingum í rekstri virkjana. Orka náttúrunnar rekur net jarðskjálftamæla á vinnslusvæðunum til að fylgjast náið með skjálftavirkni.

Samkvæmt þeim mælingum var jarðskjálftinn að stærð 5,1 en Veðurstofa segir skjálftann vera 4,8 að stærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert