Ákvörðun um framhaldið í máli Gylfa líklega tekin á morgun Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sindri Sverrisson skrifa 14. október 2021 14:35 Lögreglan í Manchester mun þurfa að taka ákvörðun um framhaldið í máli Gylfa Þórs Sigurðssonar á morgun. Vísir/Daniel Thor Lögreglan í Manchester á Bretlandi mun að öllum líkindum taka ákvörðun um það á morgun hvort Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verði ákærður fyrir kynferðisofbeldi gegn barni eða hvort farbann yfir honum verði framlengt.
Gylfi Þór var handtekinn föstudaginn 16. júlí síðastliðinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða ungmenni. Síðan hann var handtekinn hefur Gylfi verið laus gegn tryggingu og gildir það fyrirkomulag þangaði til á laugardaginn, 16. október. Vegna þess að sá dagur er laugardagur er líklegast að lögreglan þurfi að taka ákvörðun um framhaldið á morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögreglan þrjá möguleika. Hún gæti gefið út ákæru á hendur Gylfa, látið málið niður falla eða framlengt núgildandi fyrirkomulagi. Framlengingin gæti gilt frá nokkrum vikum upp í nokkra mánuði. Engin tímamörk á rannsókn mála Rétt tæpir þrír mánuðir eru liðnir síðan Gylfi var handtekinn en rannsókn svona mála geta tekið langan tíma en engin tímamörk eru á rannsókn svona mála í Bretlandi. Til samanburðar má nefna mál knattspyrnumannsins velska Ryan Giggs, sem var handtekinn grunaður um heimilisofbeldi í nóvember í fyrra. Hann var ekki ákærður fyrir heimilisofbeldi fyrr en í apríl á þessu ári og liðu sex mánuðir frá því að hann var handtekinn og þar til hann mætti fyrir dóm, þar sem hann neitaði sök. Kom fljótt í ljós að Gylfi væri maðurinn Málið hefur vakið mikla athygli, bæði hér heima og úti í Bretlandi þar sem Gylfi hefur spilað með knattspyrnuliðinu Everton í ensku úrvalsdeildinni. Slúðursögur fóru af stað á samfélagsmiðlum stuttu eftir að Gylfi var handtekinn en húsleit hafði verið gerð á heimili hans í Manchester á sama tíma og hann var handtekinn. Eftir skýrslutöku hjá lögreglunni var hann látinn laus gegn tryggingu. Strax daginn eftir handtökuna voru netverjar farnir að spekúlera um hvern hafi verið að ræða. Það var svo mánudaginn 19. júlí sem línur fóru að skýrast þegar Everton gaf út yfirlýsingu og staðfesti að leikmaður liðsins hefði verið settur í ótímabundið leyfi vegna lögreglurannsóknar. Í yfirlýsingu liðsins kom fram að um væri að ræða 31 árs gamlan leikmann. Komu þá aðeins tveir leikmenn Everton til greina á umræddum aldri, Gylfi eða Fabian Delph. Stuttu síðar steig Delph fram og lýsti því yfir að hann væri ekki umræddur leikmaður. Það var svo þriðjudaginn 20. júlí sem fréttastofa fékk það staðfest hjá heimildarmanni að Gylfi væri umræddur leikmaður. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur hvorki náðst í Gylfa né umboðsmann hans frá því að málið komst í fjölmiðla. Gylfi hefur ekkert tjáð sig um málið. Spilar hvorki með landsliðinu né Everton í vetur Gylfi er ekki á lista Everton yfir þá leikmenn sem liðið hefur mátt tefla fram í leikjum frá 1. september og má því ekki spila fyrir liðið fyrr en í fyrsta lagi 1. janúar. Hann hefur því ekkert komið við sögu hjá liðinu í stjórnartíð Rafa Benítez sem tók við Everton í sumar. Samningur Gylfa við Everton rennur út næsta sumar en hann var keyptur til félagsins frá Swansea fyrir metfé árið 2017, eða um 45 milljónir punda. Gylfi lék síðast landsleik í nóvember í fyrra. Hann gaf ekki kost á sér í fyrstu leiki Íslands undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar, í lok mars, og bar því við að hann vildi ekki missa af fæðingu fyrsta barns þeirra Alexöndru Helgu Ívarsdóttur en þau eignuðust dóttur 5. maí. Frá því að Gylfi var handtekinn hefur Ísland leikið fimm leiki í undankeppni HM án hans. Gylfi hefur leikið 78 A-landsleiki og var í fararbroddi íslenska liðsins sem komst í 8-liða úrslit á EM 2016 og í lokakeppni HM 2018. Hann hefur skorað 25 mörk sem er einu marki frá markameti Eiðs Smára Guðjohnsen og Kolbeins Sigþórssonar.
England Fótbolti Bretland Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mál Gylfa Þórs Sigurðssonar Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Enginn Aron Einar, jarðarfararstemning, stungið af en ljós við enda ganganna Þótt öldugangurinn í kringum karlalandsliðið í fótbolta hafi ekki verið jafn mikill í nýafstaðinni landsleikjahrinu og þeirri síðustu var sjórinn ekki spegilsléttur þegar kemur að strákunum okkar. 14. október 2021 10:01 Gylfi ekki í hópi Everton fyrir veturinn Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hópi Everton fyrir tímabilið í Úrvalsdeildinni í vetur. Liðin sem keppa í deildinni skiluðu í gær listum yfir þá leikmenn sem mega keppa í vetur og Gylfi er ekki einn af þeim 24 sem Rafa Benitez, þjálfari Everton valdi. 12. september 2021 10:47 Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39 Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ Íslenski boltinn Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Fótbolti „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Enski boltinn Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Enski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Sjá meira
Enginn Aron Einar, jarðarfararstemning, stungið af en ljós við enda ganganna Þótt öldugangurinn í kringum karlalandsliðið í fótbolta hafi ekki verið jafn mikill í nýafstaðinni landsleikjahrinu og þeirri síðustu var sjórinn ekki spegilsléttur þegar kemur að strákunum okkar. 14. október 2021 10:01
Gylfi ekki í hópi Everton fyrir veturinn Gylfi Þór Sigurðsson er ekki í hópi Everton fyrir tímabilið í Úrvalsdeildinni í vetur. Liðin sem keppa í deildinni skiluðu í gær listum yfir þá leikmenn sem mega keppa í vetur og Gylfi er ekki einn af þeim 24 sem Rafa Benitez, þjálfari Everton valdi. 12. september 2021 10:47
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. 28. ágúst 2021 15:39