Arsenal stórhuga í sumar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. maí 2023 23:00 Tveir plús tveir eru fjórir og það er sá fjöldi miðjumanna sem Arteta vill í sumar. Julian Finney/Getty Images Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er stórhuga í sumar eftir að hafa misst enska meistaratitilinn í knattspyrnu úr greipum sér. Liðið stefnir á að bæta við sig nokkrum þekktum stærðum til að það gerist ekki aftur.
Lærisveinar Mikel Arteta voru á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið en það er hins vegar hans gamli lærifaðir, Pep Guardiola, sem trónir enn á toppi enskrar knattspyrnu. Eftir að hafa elt Skytturnar nær allt tímabilið tók Manchester City öll völd nú undir lok tímabils og tryggði sér sigur þó enn séu tvær umferðir eftir. Til að tryggja að slíkt gerist ekki aftur ætlar Arsenal að styrkja lið sitt til muna í sumar. Virðist aðaláherslan vera á miðsvæðið. Arsenal mun einnig spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og þarf að bæta við sig leikmönnum til að vera samkeppnishæft. Fyrstur á óskalistanum er Declan Rice, fyrirliði West Ham United. Hann á aðeins ár eftir af samningi sínum við Hamrana en félagið getur þó framlengt samninginn um ár. Eru allar líkur að Hamrarnir geri það til að auka virði Rice. Hann mun kosta drjúgan skilding en þjálfari liðsins, David Moyes, hefur sagt leikmanninn vera rúmlega 100 milljón punda virði. Arteta virðist vilja bæta við sig Englendingum en Mason Mount, miðjumaður Chelsea, er einnig á óskalistanum. Samningur hans í Lundúnum rennur út 2024 og virðist sem hann yfirgefi Chelsea í sumar. Bæði Liverpool og Manchester United hafa borið víurnar í Mount til þessa. Arsenal trying to sign Man City captain Ilkay Gundogan. Arteta wants 32yo if Xhaka goes. Fresh attempts will be made to keep him at #MCFC + other options. #AFC additionally pushing hard for Rice & Mount + renewed efforts to secure Nwaneri @TheAthleticFC https://t.co/HHJY2QRmsF— David Ornstein (@David_Ornstein) May 22, 2023 Samningur İlkay Gündoğan við Englandsmeistara Manchester City rennur út í sumar. Arteta hefur áður leitað til síns fyrrum félags í leit að leikmönnum og gæti gert slíkt hið sama í sumar. Gündoğan virðist ekkert vera að flýta sér þó samningur hans renni út eftir nokkrar vikur. Hann hefur verið orðaður við Barcelona en fjárhagsvandræði þar á bæ gætu hjálpað Arsenal. Að lokum hefur Arsenal áhuga á Mohammed Kudus, sóknarþenkjandi miðjumanni hollenska félagsins Ajax. Sá hefur skorað 22 mörk í 48 leikjum fyrir Ajax og Ghana. Samningur hans rennur ekki út fyrr en 2025 en Ajax vill frekar selja menn þegar það getur fengið gott verð heldur en að leyfa samningum þeirra að renna út. Þar sem Man United og Newcastle United hafa bæði horft hýru auga til Kudus að undanförnu ætti Ajax að geta sótt ágætis summu fyrir leikmenn sem félagið keypti frá Nordsjælland í Danmörku árið 2020.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Fleiri fréttir Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Sjá meira