Íslenski boltinn

Stjarnan fær markvörð sem hefur leikið á fjórum heimsmeistaramótum og unnið Ólympíubrons

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erin McLeod í leik með kanadíska landsliðinu á HM 2015.
Erin McLeod í leik með kanadíska landsliðinu á HM 2015. getty/Steven Kingsman

Stjarnan hefur fengið kanadíska markvörðinn Erin McLeod á láni frá Orlando Pride út tímabilið.

McLeod er þrautreyndur markvörður og hefur leikið 118 landsleiki fyrir Kanada. Hún hefur farið á fjögur heimsmeistaramót og tvenna Ólympíuleika. Hún vann brons með Kanada á Ólympíuleikunum í London 2012.

McLeod er kærasta Gunnhildar Yrsu Jónsdóttir sem gekk nýverið í raðir Vals á láni frá Utah Royals.

Hin 37 ára McLeod hefur komið víða við á ferlinum. Hún hefur leikið í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Þýskalandi og nú Íslandi.

Auk McLeods hefur Stjarnan fengið ítalska framherjann Angelu Piu Caloia til liðs við sig.

Stjarnan er í 8. sæti Pepsi Max-deildar kvenna með sjö stig. Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Þór/KA á heimavelli á sunnudaginn.

Birta Guðlaugsdóttir hefur varið mark Stjörnunnar í sumar en í mörgum leikjum hefur liðið ekki verið með varamarkvörð á bekknum.


Tengdar fréttir

Gunnhildur Yrsa semur við Val

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin til liðs við ríkjandi Íslandsmeistara Vals í Pepsi Max deild kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×