Innlent

Byssusýning á Stokkseyri um helgina

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Páll Reynisson hjá Veiðisafninu á Stokkseyri, sem er í forsvari fyrir byssusýninguna um helgina. Sýningin er opin frá 11:00 til 18:00, laugardag og sunnudag.
Páll Reynisson hjá Veiðisafninu á Stokkseyri, sem er í forsvari fyrir byssusýninguna um helgina. Sýningin er opin frá 11:00 til 18:00, laugardag og sunnudag. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það verður mikið um að vera í Veiðisafninu á Stokkseyri um helgina því þar stendur yfir byssusýning þar sem úrval skotvopna og búnaðar til skotveiða, ásamt sjónaukum og aukabúnaði er til sýnis. Eigandi Veiðisafnsins segir að konur séu að koma mjög öflugar inn í skotveiðina.

Páll Reynisson á og rekur Veiðisafnið á Stokkseyri þar sem er mikið af uppstoppuðum dýrum af öllum gerðum og tegundum, sem hann hefur meira og minna skotið sjálfur. Sjón er sögu ríkari. Þessa helgi er byssusýning á Veiðisafninu þar sem hægt er að kynna sér allt, sem tilheyrir skotveiði á einn eða annan hátt.

„Í ár er það verslunin Veiðihornið í Reykjavík, Ólafur og félagar, þeir ætla að koma og vera með okkur í fyrsta sinn og það er skemmtilegt að segja frá því að það koma hingað félagar úr skotfélaginu Skotgrund á Snæfellsnesi líka. Það eru alltaf einhverjar nýjungar á þessum sýningu, það fylgir bara straumar og stefnur í þessu eins og öðru,“ segir Páll.

Páll segir mjög ánægjulegt hvað konum hefur fjölgað mikið í skotveiði og skotfimi.

„Við eigum toppklassa konur í þessu eins og víða í öðru. Ég held nú að innst inni þá snúist þetta bara að kveneðlinu og veiðinni og allt það, en til dæmis í mark skytteríinu standa þær sig mjög vel, ekkert síður en karlar og í veiðinni líka. Ég held að þær komi inn í þetta á dálítið öðrum forsendum en við karldýrin,“ segir Páll.

Fjölbreytt úrval af byssum eru til sýnis á sýningunni.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Byssusýningar Veiðisafnsins hafa verið mjög vinsælar í gegnum árin.

„Já, mjög vinsælar, hér er topp mæting laugardag og sunnudag. Þetta er þó nokkur framkvæmd að setja þetta upp og halda þessu úti en það er líka gaman og fólk kemur og þá gengur þetta allt saman upp.“

En hvað er það við skotíþróttirnar sem er svona áhugavert og skemmtilegt?

„Útiveran er númer eitt en það var einhvern tímann sagt hér að fugl í poka væri bónus, en það væri túrinn sem gilti, ég held dálítið í það,“ segir Páll.

Páll, sem er með eitt allra glæsilegasta veiðisafn landsins á Stokkseyri.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimasíða Veiðisafnsins á Stokkseyri



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×