Fótbolti

Svekk­elsi að hafa ekki klárað þennan leik með sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Arnar Þór Viðarsson á hliðarlínunni í dag.
Arnar Þór Viðarsson á hliðarlínunni í dag. Mateusz Slodkowski/Getty Images

Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, var mjög ánægður með leik íslenska landsliðið í 2-2 jafntefli liðsins við Pólland á útivelli í dag.

„Það er fyrst og fremst svekkelsi að hafa ekki klárað þennan leik með sigri en svo þegar við förum að hugsa aðeins dýpra þá erum við alveg rosalega ánægðir með leikinn. Okkar leikplan virkaði 100% í dag,“ sagði Arnar Þór um sín fyrstu viðbrögð eftir leik í viðtali við RÚV eftir leik.

„Við skoruðum tvö mörk og sáum þær sóknarleiðir miklu oftar í dag sem við höfum talað um og erum búnir að æfa á síðustu tveimur vikum. Varnarleikurinn var hreint út sagt frábær. Við fáum á okkur einhver tvö til þrjú færi. Það var synd að fá þetta mark á okkur þarna í lokin. Aðal atriðið var að þetta var mjög góður leikur af okkar hálfu.“

„Ég er ánægðastur með það að þegar við töluðum um leikinn í Færeyjum að þá sögðumst við hafa sýnt góða frammistöðu í Dallas á móti Mexíkó en samt sem áður tapað honum. Eftir sigurinn í Færeyjum töluðum við um að við vildum setja saman bæði góða frammistöðu og ná í góð úrslit. Það gekk upp og við tökum það með okkur úr þessu. Ég er líka ánægður með að sjá leikmennina svekkta inn í klefa eftir að hafa tapað þessum leik niður í jafntefli,“ sagði Arnar Þór.

Um Brynjar Inga Bjarnason

„Brynjar Ingi var frábær í dag, eins og hann er reyndar búinn að vera alla ferðina. Hann skorar mark eins og frábær sóknarmaður. Það sem ég er ánægðastur með er að hann er rólegur og gerir sér fulla grein fyrir því að það eru nokkur skref í viðbót sem hann á eftir að taka.“

„Hann er að verjast mjög vel og er rólegur á boltann þegar við erum í uppspilinu. Hann er samt eins og allir hinir ungu leikmennirnir sem hafa verið með okkur síðustu daga, eru bara búnir að vera mjög góðir,“ sagði Arnar.

Hvað tekur landsliðsþjálfarinn með sér úr leikjunum þremur?

„Það helsta sem við vildum fá út úr þessu var að við vildum halda áfram að vinna í hugmyndafræðinni. Við vildum halda áfram að æfa varnarleikinn og hvernig við viljum hafa varnarfærslurnar okkar á móti mismunandi leikaðferðum andstæðinganna. Þar höfum við tekið nokkur jákvæð skref.“

„Í sókninni vildum fara vel í sóknarfærslur og sendingafærslur. Það er svona það sem ég tek helst út úr þessu er að ef við horfum á leikinn í Dallas og leikinn í dag - á móti Mexíkó og Póllandi sem eru mjög öflug lið að sóknin er góð - erum að halda boltanum betur og lengur,“ sagði Arnar Þór að endingu.

Viðtalið má sjá í heild sinni á íþróttavef RÚV.


Tengdar fréttir

Tvö tilboð borist í Brynjar Inga

Brynjar Ingi Bjarnason hefur skotist upp á stjörnuhimininn undanfarnar vikur. Eftir frábæra byrjun með KA í Pepsi Max deildinni þá hefur hann nú spilað þrjá A-landsleiki í röð og skoraði hann sitt fyrsta mark í 2-2 jafnteflinu við Pólland í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×