Örlög ríkisstjóra Kaliforníu ráðast á morgun Kjartan Kjartansson skrifar 13. september 2021 09:49 Gavin Newsom berst nú fyrir pólitískri framtíð sinni. Atkvæðagreiðslan í Kaliforníu er aðeins sú fjórða sinnar tegundar í sögu Bandaríkjanna. AP/Ringo H.W. Chiu Kosningu um hvort að Gavin Newsom verði settur af sem ríkisstjóri Kaliforníu lýkur á morgun. Skoðanakannanir benda til þess að Newsom haldi embættinu en 46 manns sem vilja taka við af honum eru á kjörseðlinum.
Andstæðingum frjálslynda demókratans Newsom tókst að safna nægilegum fjölda undirskrifta til þess að knýja fram atkvæðagreiðslu um að setja hann af sem ríkisstjóra. Upphaflega voru þeir andsnúnir stefnu ríkisstjórans í skatta- og innflytjendamálum en eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst beindu þeir spjótum sínum að hörðum sóttvarnaaðgerðum í Kaliforníu. Atkvæðagreiðslunni lýkur á morgun. Meðaltal skoðanakannana sem vefsíðan Five Thirty Eight heldur utan um bendir til þess að Newsom haldi embættinu. Rúm 56% styðja að hann haldi áfram en 41,6% vilja hann burt. Fari svo að meirihluti kjósenda velji að sparka Newsom úr ríkisstjórastólnum hafa þeir úr 46 frambjóðendum að velja til að taka við af honum. Fremstur í flokki fer repúblikaninn Larry Elder. Sá frambjóðandi sem fær flest atkvæði vinnur, jafnvel þó að það sé vel innan við helmingur atkvæða. Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að taka þátt í baráttufundi fyrir Newsom á Long Beach við Los Angeles í kvöld. Larry Elder með Rose McGowan á blaðamannafundi í gær. Leikkonan hefur verið framarlega í flokki í Me Too-byltingunni en hún sakar eiginkonu ríkisstjórans um að reyna að þagga niður í sér.AP/Damian Dovarganes Sakar eiginkonu Newsom um að biðja sig um að þegja um brot Weinstein Elder, sem er svartur íhaldssamur útvarpsmaður, hefur teflt fram leikkonunni Rose McGowan í kosningabaráttunni sinni. Hún var ein fyrsta leikkonan til að saka Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðanda, um kynferðisofbeldi sem varð upphafið að svonefndri Me Too-bylgju sem hefur farið um heiminn. McGowan sakar Jennifer Siebel Newsom, eiginkonu ríkisstjórans, um að hafa reynt að fá sig til að þegja um brot Weinstein árið 2017. Weinstein hafði um árabil safnað fé fyrir frambjóðendur Demókrataflokksins. Siebel Newsom hefur lýst ásökunum McGowan sem algerum tilbúningi, að sögn AP-fréttastofunnar. Gömul og umdeild ummæli Elder í útvarpsþáttum og blaðagreinum hafa verið rifjuð upp í kosningabaráttunni. Hann hefur meðal annars sagt að blökkumenn ýki umfang rasisma og að konur viti minna um stjórnmál en karlar. Þá vill hann leyfa vinnuveitendum að spyrja konur hvort þær ætli sér að eignast börn.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Sjá meira