Sigurður Ingi segir Sundabraut tilbúna eftir níu ár Heimir Már Pétursson skrifar 25. janúar 2022 16:37 Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að Sundabraut geti orðið að veruleika eftir níu ár. Félagshagfræðileg greining sem skilað hafi verið til hans og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í gær sýni ótvíræðan ábata af mannvirkinu á fyrstu þrjátíu árum þess. „
Ábatinn er á bilinu 186 til 236 milljarðar. Sundabrautin styttir leiðir og minni akstur dregur þar af leiðandi bæði úr útblæstri og mengun. Heildaraksturinn gæti minnkað um 150 þúsund kílómetra á hverjum sólarhring,“ segir Sigurður Ingi. Samkvæmt félagshagfræðilegri greiningu sem starfshópur skilaði til ráðherra og borgarstjóra myndi brú kosta um 69 milljarða en göng 83 milljarða. Ríki og borg undirrituðu yfirlýsingu í júlí 2021 um lagningu Sundabrautar þar sem sammælst var um Sundabraut yrði lögð alla leið á Kjalarnes í einni framkvæmd og að brautin yrði tekin í notkun árið 2031. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er sannfærður um að Sundabraut verði komin í gagnið árið 2034.Stöð 2/Sigurjón Sigurður Ingi segir næstu skref nú skýr og Sundabraut komin í fastar skorður og öruggt ferli. Framundan væri umhverfismat og á sama tíma væri hægt að vinna að breytingum á skipulagi Reykjavíkurborgar og höfuðborgarsvæðisins. Einnig þurfi að fara að undirbúa útboð og ræða við Faxaflóahafnir varðandi útfærslu verði gerð brú yfir Kleppsvík en ekki farið í jarðgöng. Neðansjávargöng yfir Kleppsvík myndu kosta 14 milljörðum meira en brú yfir víkina. Þegar innviðaráðherra og borgarstjóri undirrituðu yfirlýsingu um málið í júlí í fyrra sagði Sigurður Ingi að brúin gæti orðið mikið tákn fyrir Reykjavíkurborg.Vegagerðin Nokkrar deilur hafa staðið um þetta mál í áratugi. Innviðaráðherra segir stofnkostnað meiri við göng en brú. Umferð færi meira óhindrað í gegnum göng en leiðin myndi styttast meira í kílómetrum með brú. Í dag telur Sigurður Ingi báða kostina koma til greina. Hæð brúarinnar ræður miklu um hvort Samskip geti haldið áfram allri starfsemi sinni á þeim stað sem skipafélagið er nú innan mögulegs brúarstæðis.Vegagerðin „Já, þeir koma í raun og veru báðir til greina á þessari stundu. Þó svo ég hafi um nokkurt skeið, og það hefur ekki breyst, talið að brúin hafi fleiri kosti í för með sér. Ekki síst vegna þess að hún er góður ávinningur fyrir gangandi og hjólandi og fyrir almenningssamgöngur,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson. Hann reikni með að eiga fundi um þessi mál með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra á næstunni.
Reykjavík Sundabraut Samgöngur Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Borgarlína Mosfellsbær Tengdar fréttir Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15 Samgönguráðherra segir hugsanlegt að flýta hluta Sundabrautar Samgönguráðherra segir hugsanlega hægt yrði að flýta framkvæmdum við lagningu Sundabrautar með því að byrja á kaflanum milli Gufuness og Kjalarness á með umhverfismat og aðrar rannsóknir fari fram á kostum brúar eða neðansjávarganga milli sundahverfis og Gufuness. Hann sé sannfærður um að brúin muni reynast betri kostur eftir því sem málið verði skoðað betur. 19. febrúar 2021 12:15 „Nú er búið að skoða þetta nóg“ Borgarstjóri segir að göng fyrir Sundabraut séu enn raunhæfur kostur en samgönguráðherra sló þann kost nánast út af borðinu í gær. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík telur að málið hafi verið skoðað nógu vel, nú þurfi að framkvæma. 4. febrúar 2021 19:00 Borgarstjóri ekki sannfærður um Sundabrú Borgarstjóri er ekki sannfærður um að brú sé rétta lausnin fyrir Sundabraut og segir að jarðgöng séu einnig raunhæfur kostur samkæmt nýrri skýrslu. 4. febrúar 2021 12:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Innlent Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Innlent Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Innlent Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Innlent Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg Innlent Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Innlent Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Innlent Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Innlent Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Innlent Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Erlent Fleiri fréttir Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu „Engin ástæða til að boða til kosninga“ Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Ræða vantrauststillögu Skólabrú með garði á þakinu „djörf og fersk“ tillaga Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Húsfélag ekki skaðabótaábyrgt vegna myglu í séreign Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Öryrkjar gagnrýna frestun á lagabreytingu og FÍB vill grisja bílastæðafrumskóginn Fleiri gifta sig hjá sýslumanni en í kirkju Sagði höfuðhögg eiga að koma í veg fyrir að lögreglan fengi hann í hendurnar Landlæknir rannsaki ummæli formanns Geðlæknafélagsins Fimmtungur ánægður með störf Einars borgarstjóra Brynjar pirrar sig á undirskriftum gegn Bjarna Umferðaróhapp við Vesturlandsveg Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg „Allir sem voru á þessum markaði spáðu því að þetta yrði svona“ „Við þurfum að fá einhver viðbrögð“ „Eðlilegt að þingið skeri stjórnina úr snörunni“ Mátti sekta mann sem lagði á eigin lóð Sjá meira
Yfirlýsing um Sundabraut: „Má segja að framkvæmdin sé hafin þótt engin sjáist grafan“ Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast eftir fimm ár og brautin að vera tilbúin eftir tíu ár, samkvæmt yfirlýsingu sem samgönguráðherra og borgarstjóri undirrituðu á Vogabakka í Sundahöfn síðdegis. Leggja á brautina alla leið í einni samfelldri framkvæmd og efna til alþjóðlegrar hönnunarsamkeppni um útlit Sundabrúar, verði hún fyrir valinu. 6. júlí 2021 22:15
Samgönguráðherra segir hugsanlegt að flýta hluta Sundabrautar Samgönguráðherra segir hugsanlega hægt yrði að flýta framkvæmdum við lagningu Sundabrautar með því að byrja á kaflanum milli Gufuness og Kjalarness á með umhverfismat og aðrar rannsóknir fari fram á kostum brúar eða neðansjávarganga milli sundahverfis og Gufuness. Hann sé sannfærður um að brúin muni reynast betri kostur eftir því sem málið verði skoðað betur. 19. febrúar 2021 12:15
„Nú er búið að skoða þetta nóg“ Borgarstjóri segir að göng fyrir Sundabraut séu enn raunhæfur kostur en samgönguráðherra sló þann kost nánast út af borðinu í gær. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík telur að málið hafi verið skoðað nógu vel, nú þurfi að framkvæma. 4. febrúar 2021 19:00
Borgarstjóri ekki sannfærður um Sundabrú Borgarstjóri er ekki sannfærður um að brú sé rétta lausnin fyrir Sundabraut og segir að jarðgöng séu einnig raunhæfur kostur samkæmt nýrri skýrslu. 4. febrúar 2021 12:06