Boða nýjar sundlaugar, knatthús og hjólaborg á heimsmælikvarða Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2020 13:28 Á fundinum kom fram að metsamdráttur sé í hagkerfinu og atvinnuleysi í borginni nú meira en 10 prósent. Borgin og fyrirtæki hennar ætli sér að „nota styrk sinn“ til að tryggja öfluga viðspyrnu næstu þrjú ár með alls 175 milljarða fjárfestingu. Reykjavíkurborg Tíu þúsund nýjar íbúðir og þrjár nýjar sundlaugar á næstu tíu árum. Fjárfestingar fyrir 175 milljarða á næstu þremur árum. Reykjavík verði hjólaborg á heimsmælikvarða. Allt kemur þetta fram í svokölluðu Græna plani Reykjavíkurborgar sem kynnt var á fréttamannafundi oddvita þeirra flokka sem saman mynda meirihluta í borgarstjórn í dag.
Á fundinum kom fram að metsamdráttur sé í hagkerfinu vegna heimsfaraldursins og atvinnuleysi í borginni nú meira en 10 prósent. Rekstrarniðurstaða samstæðu sé neikvæð um 11,3 milljarða króna en að stefnt sé að því að hún verði jákvæð eftir tvö ár. Að neðan má sjá fréttamannafundinn í heild sinni. Þá kom fram að borgin og fyrirtæki hennar muni „nota styrk sinn“ til að tryggja öfluga viðspyrnu næstu þrjú ár með alls 175 milljarða fjárfestingu. Í tilkynningu frá borginni eru tíunduð nokkur dæmi um „lykilfjárfestingaverkefni“ í Reykjavík yfir tímabil Græna plansins sem nær til ársins 2030. Frá fréttamannafundinum í dag.Vísir/Sigurjón 175 milljarða fjárfestingar á 3 árum. Á næstu þremur árum ætlar Reykjavíkurborg að verja 95 milljörðum í fjárfestingar. Stór hluti þeirra fellur undir grænar fjárfestingar. Fyrirtæki borgarinnar munu á sama tíma fjárfesta fyrir 80 milljarða, stærstu fjárfestingarnar verða í grænum innviðum og félagslegu húsnæði. Milljarður í ný störf og 5 milljarðar árlega í ný húsnæðisúrræði. Milljarði króna verður varið í að búa til ný störf fyrir atvinnulausa, stuðningsúrræði og virkni fyrir fólk á fjárhagsaðstoð á næsta ári. Yfir 5 milljarðar verða lagðir árlega á næstu árum í átak í uppbyggingu búsetuúrræða fatlaðs fólks og fyrir heimilislausa og fjölgun félagslegra leiguíbúða Græn samgöngubylting. Með Borgarlínu, orkuskiptum og hjólastígakerfi fyrir allt höfuðborgarsvæðið verður bylting í grænum samgöngum. Reykjavík verður hjólaborg á heimsmælikvarða. Grænar fjárfestingar í samgöngusáttmála ríkis og SSH í Reykjavík verða yfir 50 milljarðar til 2030. 10 milljarðar í stafræna umbreytingu þjónustu. Allri þjónustu og afgreiðslu sem hægt er að færa á netið verður umbreytt á þremur árum með tíu milljarða fjárfestingu í upplýsingatækni og stafrænni umbreytingu borgarinnar. Nýir skólar, græn hverfi. Nýir skólar rísa í Skerjafirði, Vogabyggð og Ártúnshöfða og leikskólaplássum verður fjölgað til að taka inn ársgömul börn. Nýju hverfin á Ártúnshöfða og í Skerjafirði verða grænustu hverfi sem risið hafa í Reykjavík. 10 milljarðar í viðhaldsverkefni. Tíu milljörðum verður varið í viðhald næstu þrjú ár. Fjárveitingar til endurnýjunar eldra skólahúsnæðis verða stórhækkaðar og Borgarbókasafnið í Grófarhúsi og Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi verða endurnýjuð. Fjárfest í grænni borg. Götur í öllum hverfum fá grænna yfirbragð og meiri gróður, græn svæði og almenningsgarðar verða fegraðir, ásýnd borgarinnar verður blómlegri og skógrækt aukin með gróðursetningu Loftslagsskóga Reykjavíkur. Þrjár nýjar sundlaugar, knatthús og íþróttaaðstaða. Lýðheilsa, hreyfing og íþróttaþátttaka verður efld með fimleikahúsum í Breiðholti og Árbæ, knatthúsi í Vesturbæ og betri íþróttaaðstöðu víða um borgina. Þrjár nýjar sundlaugar eru á tíu ára áætlun; í Úlfarsárdal, Fossvogi og í Elliðaárvogi. Uppbygging útivistarsvæða um alla borg. Fleiri áningarstaðir og innviðir til útivistar byggðir upp í Elliðaárdal og Öskjuhlíð og sjóbaðsaðstaða útbúin við strandlengjuna. Vetrargarður í Breiðholti og skíðasvæðin í Bláfjöllum stórefld. Útivistaraðstaða bætt við Rauðavatn og á Hólmsheiði þar sem einnig verða gerðar reiðleiðir. 10.000 íbúðir á 10 árum. Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að fjárfesta 12 milljarða í innviðum þar sem næstu 10.000 íbúðir í Reykjavík rísa. Þær verða af öllum stærðum og gerðum, fyrir allan aldur og tekjuhópa og flestar staðsettar nálægt Borgarlínu og lifandi atvinnukjörnum.
Borgarstjórn Reykjavík Skipulag Húsnæðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira