Biðlar til fólks að takmarka eins og mögulegt er hverja það hittir Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 23. september 2020 11:54 Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir að það komi enn dálítið á óvart hversu margir þurfi að fara í sóttkví í kringum hvern einstakling sem greinist með kórónuveiruna. Vísir/Vilhelm
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segir fjölda kórónuveirusmita innanlands í gær á pari við það sem hann bjóst við. Hann bendir á að metfjöldi sýna hafi verið tekinn en segir að það komi enn pínulítið á óvart hversu margir geta farið í sóttkví í kringum hvern einstakling sem greinist. Hann biður fólk um að takmarka eins og mögulegt er þá hópa sem það er að hitta. Alls greindust 57 manns með kórónuveiruna innanlands í gær en á sama tíma hafa aldrei verið tekin fleiri sýni. Alls voru tekin 2.798 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu, 1.291 sýni var tekið í annarri skimun hjá ÍE og 436 sýni voru tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun. Þetta gera rúmlega 4.500 sýni og með þeim 640 sýnum sem tekin voru á landamærunum fer fjöldinn yfir 5.000. Víðir segir búið að lækka þröskuldinn varðandi sýnatöku og einkenni og að mikil hvatning hafi verið til fólks sem er með einkenni að fara í sýnatöku. Mikið af pestum sé í gangi og það takist að ná til fleiri einstaklinga. „Það eru jákvæðar fréttir að því leytinu til að við erum búin að ná þessum einstaklingum og koma þeim í einangrun, á sama tíma eru alveg gríðarlega margir sem þurfa að fara í sóttkví tengt þessum einstaklingum og það kemur manni ennþá pínulítið á óvart hversu margir geta farið í sóttkví í kringum einn einstakling þegar við erum núna í þriðju bylgju og komin á aðra viku í það að hvetja fólk til að fara mjög varlega,“ segir Víðir og bætir við: „Skilaboð okkar inn í daginn eru að fólk takmarki eins og það geti þá hópa sem það er að hitta og skoði hvort það sem fólk er að gera þurfi raunverulega að fara fram með því að hittast eða hvort fólk getur gert það með öðrum leiðum, eins og við höfum verið að tala um með vinnustaði, að þeir fari í heimavinnu eins og hægt er.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Pétur Einarsson leikari látinn Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira