Hefði ekki átt að vera rafmagnslaust svona lengi Elín Margrét Böðvarsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 6. mars 2021 11:32 Rafmagnslaust var í Grindavík í þónokkuð langan tíma. Vísir/Egill Egill Þorsteinn Sigmundsson, Sviðsstjóri rafmagnssviðs hjá HS Veitum, segir ólíklegt að rafmagnsleysið í Grindavík megi rekja til jarðhræringa á Reykjanesi. Það sé fyrst og fremst óheppni að rafmagni hafi slegið út í Grindavík á þessum tímapunkti. Töluvert langan tíma tók að finna bilunina sem olli rafmagnsleysinu. Rafmagnslaust var í um átta til tíu klukkustundir í gær. „
Það er búið að finna orsökina, þetta var í tveimur spennistöðvum niðri í Grindavík, bæði háspennubúnaður sem var bilaður og svo lágpennubúnaður í öðru tilfelli. Tengist ekki neitt þannig. Við erum svo sem ekki búin að greina þetta þannig, þetta gætu verið einhverjar orsakir eftir þessa skjálfta en það þarf ekki að vera,“ segir Egill í samtali við fréttastofu. „Útslátturinn verður um tvö leytið, þá slær út hluti af Svartsengi og öll Grindavík, sá búnaður sem slær þessu út, það má segja að hann sé til að verja stóran spenni sem er í Svartsengi, á bara að sjá um það, en hann fer út fyrir sitt starfssvið, hann horfir lengra en bara á þann búnað sem hann á að verja og sér einhverja bilun og hún er niðri í Grindavík,“ útskýrir Egill. Í byrjun hafi starfsfólk ekki skynjað þetta og það hafi truflaði alla greiningu í byrjun. „Fyrst héldum við að það væri spennirinn sem var bilaður, þá fór tími í það og verið að ákveða hvort það ætti að skjóta á hann,“ segir Egill. Hefði átt að standa í um þrjá tíma í mesta lagi „Menn þurfa að vera fullvissir um að það sé ekkert bilað í spenninum þegar það er skotið á hann, þannig að það tekur tíma, síðan í framhaldinu þá fara menn að horfa aðeins út úr spenninum og þá telja menn líklegt að tengining frá Svartsengi og niður í Grindavík, að það sé eitthvað að þeim streng. Við förum í miklar mælingar til að sannfæra okkur um að þessir strengir séu í lagi, og þetta allt tekur mjög langan tíma, og þá loksins sjáum við að bilunin er raunverulega niðri í Grindavík,“ segir Egill. „Í byrjun þá hefði aldrei átt að slá út þessi búnaður sem að sló út í Svartsengi, hann átti ekkert að vera að skipta sér af þessu svæði og það er það sem truflaði okkur í byrjun með þessa bilanagreiningu og þess vegna tók þetta allt of langan tíma og þetta hefði kannski bara staðið yfir í þrjá, þrjá og hálfan tíma í mesta lagi og bara í hluta Grindavíkur ef að þessi búnaður hefði ekki verið að vinna svona upp. Búnaðurinn kominn til ára sinna Er ekki hægt að útiloka skjálftarnir hafi komið þessu af stað? „Það eru litlar líkur,“ svarar Egill. Það væri hálfgerð óheppni að slegið hafi út í Grindavík í ofanálag við allt annað sem þar hefur verið í gangi sökum jarðhræringa undanfarinna daga. „Ég held að þetta sé nú bara bæði það að rofinn sem fer þarna í háspennunni var kominn til ára sinna og það var svo sem planið að skipta honum út,“ segir Egill. Í mesta lagi sé möguleiki að bilunina sem upp kom í lágspennukerfi í nýju hverfi í Grindavík megi rekja til jarðskjálfta. Hann kveðst þó ekki geta fullyrt um það. Egill segir jafnframt að rafmagnsleysið í Grindavík og Svartsengi tengist ekkert rafmagnsleysinu á Selfossi í gær. „Á Selfossi þá töldu menn sig sjá eldingu í línu Landsnets sem liggur frá Eyrarfoss og niður á Selfoss og alla veganna sló sú lína út og um leið og hún fer út þá slær hún út bæði spenni fyrir okkur HS Veitur og Rarik á Selfossi,“ segir Egill. Mjög stuttan tíma hafi þó tekið að gera við þá bilun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Orkumál Grindavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Innlent Fleiri fréttir Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti Sjá meira