Hyggst tilkynna framboðið á morgun með Elon Musk Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. maí 2023 23:45 Ron DeSantis hefur beint spjótum sínum að Disney heima fyrir í Flórída en nú fara spjótin að beinast að Donald Trump í forvali Repúblikana. Stephen Maturen/Getty Images Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, hyggst lýsa formlega yfir forsetaframboði sínu á morgun. Hann hyggst gera það ásamt milljónamæringnum Elon Musk á stafrænum vettvangi á samfélagsmiðlinum Twitter, í eigu milljónamæringsins.
Viðburðurinn mun fara fram á samfélagsmiðlinum á hinu svokallaða „Twitter Spaces“ svæði á miðlinum á morgun, klukkan 18:00 að bandarískum tíma eða 22:00 að íslenskum. Í umfjöllun CNN kemur fram að ákvörðun ríkisstjórans um að tilkynna framboðið ásamt Musk undirstriki tilraunir hans til að hafa hægrisinnaða samfélagsmiðlanotendur miðilsins af Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Fastlega hefur verið gert ráð fyrir því að þeir Trump og DeSantis muni berast á banaspjót í forvali Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar þar vestanhafs 2024. Lengi hefur verið búist við því að DeSantis færi fram í forvalinu en hann hefur beðið átekta þar til nú. Í umfjöllun CNN kemur fram að DeSantis hafi löngum verið talinn helsta fyrirstaða þess að Trump beri sigur úr býtum í forvalinu. Fylgi ríkisstjórans hjá væntanlegum kjósendum og bakhjörlum Repúblikanaflokksins hefur hins vegar að sögn bandaríska miðilsins verið á niðurleið að undanförnu. Fyrrverandi forsetinn hefur æ oftar beint spjótum sínum að ríkisstjóranum á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Enginn Trump á Twitter Þar hefur Trump setið sem fastast allt síðan hann var rekinn af Twitter árið 2021. Eftir að Elon Musk eignaðist Twitter opnaði hann aftur fyrir aðgang fyrrverandi forsetans, sem sýnt hefur því litla athygli að byrja þar aftur og er sviðið því autt á miðlinum fyrir DeSantis til að ná til hægrisinnaðra notenda miðilsins. Á fundi með fjárhagslegum bakhjörlum sínum í síðustu viku sagði DeSantis að hann væri sá eini sem gæti haft forsetastólinn af Joe Biden, Bandaríkjaforseta. Ólíklegt væri, miðað við gögn í lykilríkjum, að kjósendur myndu skipta um skoðun á Donald Trump, Bandaríkjaforseta. DeSantis hefur ekki áður vegið að Trump svo afdráttarlaust áður. Trump hefur aftur á móti ekki hikað við að ausa aur yfir mótherja sinn. Fyrrverandi forsetinn hefur meðal annars uppnefnt hann Ron „skinhelga“ (e. DeSanctimonious) sem er útúrsnúningur á eftirnafni ríkisstjórans. Horfa má á umfjöllun ABC fréttastofunnar um málið hér fyrir neðan: <a href="https://www.youtube.com/watch?v=C9UQvXL8KgQ">watch on YouTube</a>
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Sjá meira