Þjálfari brá fæti fyrir ungan leikmann ÍR Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. mars 2021 11:21 Leikmaður ÍR skokkar til baka eftir að hafa sett niður þriggja stiga körfu. Szymon virðist tilbúinn að bregða fæti fyrir leikmanninn. Szymon Eugieniusz Nabakowski, yngri flokka þjálfari hjá Skallagrími í Borgarnesi, segist munu læra af mistökum sínum þegar hann brá fæti fyrir leikmann ÍR í síðustu viku. Gestirnir í Breiðholti voru með mikla yfirburði gegn Borgnesingum og lét þjálfarinn skapið hlaupa með sig í gönur.
Atvikið, sem sjá má í myndbandinu að neðan, hefur vakið mikla athygli í körfuboltaheiminum. Eftir vel útfærða sókn ÍR-inga skorar einn leikmanna liðsins þriggja stiga körfu úti við hliðarlínu við varamannabekk Skallagríms. Varð munur liðanna þá fimmtíu stig og missti þjálfarinn stjórn á skapi sínu, eins og hann kemst sjálfur að orði. Þegar leikmaður ÍR skokkar til baka bregður Szymon fæti fyrir hann. Drengurinn féll þó ekki til jarðar en vel vakandi dómari tók eftir bragði þjálfarans og rak hann úr húsi. Szymon tjáir sig um atvikið í hópnum Dominos-spjallið á Facebook þar sem körfuknattleiksunnendur skiptast á skoðunum um allt það sem kemur íþróttinni við. Hann segir ákvörðun dómarans að vísa sér úr húsi hafa verið hárrétta. Vissi strax hversu mikil skita þetta var „Ég er þakklátur að við áttum einn dómara með dómaraþekkingu sem brást rétt við en það er ekki alltaf gefins úti á landi,“ segir Szymon. Hann hafi ekki átt skilið að vera inni á vellinum. „Ég fór inn í klefa og vissi strax hversu mikil skita þetta var.“ Hann sé mikill keppnismaður, langi alltaf til að vinna og sé mikil tilfinningavera þegar komi að körfuboltanum. Svona hegðun eigi þó ekki heima í þjálfun. Hann hafi strax eftir leik beðið ÍR-strákana afsökunar og þjálfara þeirra sem og dómara leiksins. „Ég vissi strax eftir leik að þetta (væri) hlægileg hegðun og eitthvað sem var ekki í lagi. Þegar ég kem heim þá tala ég við kærustu mína og segi henni strax að ég á að segja upp og finna út úr þessu og vinna í sjálfum mér. Daginn eftir talaði ég við Skallagrím og við tökum ákvörðun um að ég hætti að þjálfa. Ég elska að þjálfa og mun halda áfram að gera það en ég veit að svona má ekki gerast aftur og ég mun vinna í sjálfum mér til að verða betri.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var það sameiginleg ákvörðun körfuknattleiksdeildar og Szymons að hann léti af störfum. Hneyksluð á viðbrögðum Viðbrögðin í Dominos-spjallinu standa ekki á sér. Upp til hópa hrósar körfuboltaáhugafólk Szymon fyrir viðbrögðin. Ekki eru þó allir sáttir og meðal þeirra er Elín Lára Reynisdóttir, þjálfari yngri flokka hjá Breiðablik, er þeirrar skoðunar að fólk eigi að hætta að hrósa Szymon fyrir viðbrögðin. „Nenniði plís að hætta láta eins og þessi maður sé einhver hetja fyrir að biðjast afsökunar á að reyna viljandi að slasa barn í miðjum leik? Það er algjört skíta lágmark. Þetta er ekkert „hlægileg hegðun“ eða að missa hausinn „í hita leiksins“. Í guðanna bænum fáum smá standard.“ Nenniði plís að hætta láta eins og þessi maður sé einhver hetja fyrir að biðjast afsökunar á að reyna viljandi að slasa barn í miðjum leik? Það er algjört skíta lágmark. Þetta er ekkert „hlægileg hegðun“ eða að missa hausinn „í hita leiksins“. Í guðanna bænum fáum smá standard. pic.twitter.com/w6LxAk8y9C— Elín Lára Reynisdóttir (@ElinLaraRey) February 27, 2021
Borgarbyggð Körfubolti Skallagrímur ÍR Íþróttir barna Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn Lopetegui tekur við West Ham Enski boltinn Fleiri fréttir Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Fimm ára bið á enda hjá Norris Luku hundrað ára bið Noregs og það bitnaði á þjálfurunum Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Dagskráin í dag: Stúkan, Körfuboltakvöld, Lögmál leiksins og stórleikir Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” Afturelding einum sigri frá úrslitum „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Sjá meira