Laus við kórónuveiruna

Kevin De Bruyne hefur ekkert æft með liði Manchester City …
Kevin De Bruyne hefur ekkert æft með liði Manchester City undanfarnar vikur. AFP

Kevin De Bruyne, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Manchester City, er laus við kórónuveiruna. Þetta tilkynnti Pep Guardiola, stjóri City, á blaðamannafundi í dag.

City undirbýr sig nú fyrir leik gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer í Birmingham á morgun.

Þrátt fyrir að De Bruyne sé laus við veiruna þá verður hann ekki í leikmannahóp liðsins á morgun en hann hefur misst af síðustu þremur leikjum liðsins.

„Kevin hefur ekkert æft með okkur undanfarnar vikur,“ sagði spænski knattspyrnustjórinn.

„Hann fékk neikvætt úr síðustu skimun sinni fyrir kórónuveirunni og ætti því að geta hafið æfingar að nýju á næstu dögum,“ bætti Guardiola við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert