Selfyssingar kæra vegna mistaka á ritaraborði

Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir í leik Selfoss og Stjörnunnar.
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir í leik Selfoss og Stjörnunnar. Ljósmynd/Umf.Selfoss/SÁ

Handknattleiksdeild Selfoss hefur kært framkvæmdina á leik kvennaliðs félagsins gegn ungmennaliði Stjörnunnar í 1. deild kvenna sem fram fór í Garðabæ í gær. Sunnlenska.is skýrir frá þessu.

Í leikslok stóð 29:29 á töflunni en þegar dómarar leiksins fóru yfir leikskýrsluna eftir leikinn bættu þeir við marki á Stjörnuna sem þar með hefði unnið leikinn, 30:29.

Sunnlenska.is segir að samkvæmt  sínum heimildum hafi riturum leiksins láðst að skrá sautjánda mark Stjörnunnar á skýrsluna.

Selfyssingar segja í yfirlýsingu að ljóst sé að framkvæmd leiksins hafi verulega ábótavant.

„Hafði þetta mikil áhrif á framgang leiksins, en leikurinn varð mjög jafn undir lokin. Sambærilegt atvik gerðist fyrr á þessu ári í Mýrinni, þar sem Stjarnan og KA/Þór mættust í Olísdeild kvenna. Niðurstaða áfrýjunardómstóls HSÍ var að endurtaka þann leik vegna ágalla í framkvæmd leiks,“ segir í yfirlýsingu Selfyssinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert