Hörður Axel: Búið að taka rosalega mikið af okkur ef við fáum ekki einu sinni að snerta boltann Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. nóvember 2020 20:16 Hörður Axel var ánægður með leik íslenska liðsins í dag en vill þó fara komast á æfingar Vísir/Bára Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson var til tals eftir frábæran sigur Íslands á Kósóvó í undankeppni HM 2023 í körfubolta í dag. Hörður Axel, fyrirliði íslenska liðsins, var mjög stoltur af liði sínu í dag.
Íþróttavefur RÚV birti viðtal við Hörð Axel eftir 24 stiga sigur Íslands á Kósovó fyrr í dag, lokatölur 86-62 Íslandi í vil. „Við sem erum að spila heima ekki búnir að spila körfubolta í tvo mánuði þannig við vorum aðeins ryðgaðir í fyrri hálfleik á móti Lúxemborg, eftir það erum við búnir að vera þrusuflottir finnst mér,” sagði fyrirliðinn eftir leik. „Ég er fullur tilhlökkunar að fá að spila körfu. Þetta er það sem margir af okkur hafa lifað fyrir síðan við vorum litlir guttar. Nú er búið að taka það svolítið af okkur. Við erum bara ánægðir að fara á völlinn og spila og vonandi fáum við að gera það sem fyrst,” segir Hörður Axel einnig. Íslensk félög hafa hvorki fengið að æfa né spila síðan í byrjun októbermánaðar. Hörður Axel vonast til að liðin fái leyfi til að hefja æfingar að nýju sem fyrst. „Viljum auðvitað fá að spila, ef það er ekki hægt viljum við að minnsta kosti fá að æfa. Það er hægt að æfa körfubolta á svo marga vegu án þess að brjóta sóttvarnarlög. Við getum hugsað um okkur sjálfir, af því við viljum svo mikið æfa, við þurfum að æfa. Þetta er svo stór hluti af okkar lífi. Það er búið að taka rosalega mikið af okkur ef við fáum ekki einu sinni að snerta boltann,” segir Hörðu Axel að endingu í viðtalinu eftir stórsigur Íslands. Sjá má viðtalið við Hörð Axel í heild sinni inn á íþróttavef RÚV.
Körfubolti HM 2023 í körfubolta Mest lesið Scottie Scheffler fer fyrir dómstóla í byrjun júní Golf Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ Körfubolti Anníe Mist: Hver veit hvar ég verð eftir eitt ár Sport Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær Íslenski boltinn Löðrungaði son sinn fyrir að gera lítið úr Juventus Fótbolti Eigendur Inter í fjárhagskröggum og við það að missa félagið frá sér Fótbolti Völdu Albert í lið ársins Fótbolti Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna Körfubolti Fleiri fréttir Meiðsli settu strik í reikninginn og biðin eftir fyrsta sigrinum lengist Wembanyama fylgir í fótspor goðsagna „Mér finnst ég vera besti leikmaðurinn á Íslandi“ „Eins og Svali segir: Móðir allra íþrótta“ „Spilum eins og það sé enginn morgundagur“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Spilaði á móti Caitlin Clark og Paige Bueckers í háskóla „Það að við höfum ekki hjálpað honum meira fór mest í taugarnar á mér“ Keflavík er 10-0 á móti Njarðvík í körfunni í vetur Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Sjá meira