Mannréttindamál og viðskiptatækifæri Snorri Másson skrifar 3. desember 2022 20:11 Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Áslaugu Briem frá Ferðamálastofu hvatningarverðlaun ÖBÍ í dag. ÖBÍ Það er misskilningur að það sé endilega mjög kostnaðarsamt að tryggja gott aðgengi á ferðamannastöðum, að sögn verkefnastjóra hjá Ferðamálastofu, sem segir mikinn heiður að stofnunin hafi hlotið Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalagsins á alþjóðadegi fatlaðra í dag.
3. desember er alþjóðadagur fatlaðs fólks á ári hverju þar sem vakin er athygli á réttindabaráttu hópsins. Á þessum degi veitir Öryrkjabandalag Íslands líka Hvatningarverðlaun til hópa eða einstaklinga fyrir lofsverð framlög á þessu sviði, og þetta árið var það Ferðamálastofa sem hreppti verðlaunin fyrir verkefnið "Gott aðgengi í ferðaþjónustu." Þar var búinn til ákveðinn sjálfsmatsstaðall fyrir fyrirtæki um aðgengi á staðnum. „Ef þau staðfesta að þau uppfylli þær kröfur sem eru gerðar, fá þau merki verkefnisins Gott aðgengi og geta merkt sig sjálf og eru merkt miðlæg í gagnagrunni Ferðamálastofu og á Visit Iceland og fleiri síðum,“ segir Áslaug Briem, verkefnastjóri gæðamála á Ferðamálastofu, í samtali við fréttastofu. Framtakið hefur stuðlað bæði að bættu aðgengi og betri skráningu á aðgengi víða um land. Fatlað fólk er um 15 prósent mannkyns samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar - það gerir um milljarð á heimsvísu, en um 57.000 manns hér á landi. „Að vera með gott aðgengi er auðvitað mannréttindamál og hluti af ábyrgri starfsemi fyrirtækja að huga vel að aðgenginu. En við erum að kynna fyrir ferðaþjónustuaðilum að þetta er líka gott viðskiptatækifæri, því það kemur í ljós þegar þessi markhópar hafa verið skoðaðir af okkar sérfræðingum að þeir eru mjög stórir og mjög vaxandi til framtíðar. Ekki síst eldri borgarar, sá markhópur, þeir hafa þörf fyrir gott aðgengi,“ segir Áslaug. Áslaug bætir því við að það vaxi sumum fyrirtækjum í augum að kostnaður við að bæta aðgengi kunni að reynast mjög mikill, en að hið rétta sé að það kosti oft ekki mikið og það borgi sig. En talandi um eldri borgara og aðgengi í ferðaþjónustu... Það var einmitt verið að tala um það nýverið í fréttum hjá okkur að það væri verið að skoða það að setja kláf upp Esju. Áslaug: „Ég þekki það ekki en finnst það bara skemmtileg hugmynd. Það bara væri flott, þeir huga vonandi að öllum þáttum aðgengis fyrir fatlaða,“ segir Áslaug.
Málefni fatlaðs fólks Mannréttindi Tengdar fréttir Verðlaunuðu Ferðamálastofu fyrir gott aðgengi í ferðaþjónustu Ferðamálastofa hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðs fólks. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni um aðgengi fatlaðs fólks í ferðaþjónustu. 3. desember 2022 13:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Erlent Fleiri fréttir Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Sjá meira
Verðlaunuðu Ferðamálastofu fyrir gott aðgengi í ferðaþjónustu Ferðamálastofa hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka í tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðs fólks. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni um aðgengi fatlaðs fólks í ferðaþjónustu. 3. desember 2022 13:56