Afturelding hefur fengið til sín Hamza Kablouti, 26 ára handboltamann frá Túnis. Kablouti er rétthent skytta og 194 sentimetrar.
Handbolti.is greindi frá í kvöld. Kablouti kemur til Aftureldingar frá Ivry í Frakklandi en liðið féll úr efstu deild á síðustu leiktíð.
Kablouti hefur leikið með landsliði sínu á heimsmeistaramótum og mun styrkja lið Mosfellinga.