Fótbolti

Sjáðu Messi skora 800. markið með viðeigandi hætti

Sindri Sverrisson skrifar
Rodrigo De Paul hoppar á axlir LIonels Messi eftir glæsimarkið í nótt.
Rodrigo De Paul hoppar á axlir LIonels Messi eftir glæsimarkið í nótt. AP/Gustavo Garello

Lionel Messi náði einn einum áfanganum í gærkvöld þegar Argentína spilaði sinn fyrsta leik á heimavelli eftir að Messi leiddi liðið að heimsmeistaratitlinum í fótbolta í desember.

Hinn 35 ára gamli Messi skoraði seinna mark Argentínu úr gullfallegri aukaspyrnu undir lokin, í 2-0 sigri gegn Panama í vináttulandsleik. Markið má sjá hér að neðan.

Messi hefur nú skorað samtals 800 mörk á hæsta stigi fyrir landslið og félagslið sín. Sá eini sem einnig hefur afrekað það er Cristiano Ronaldo.

„Mig dreymdi alltaf um þetta augnablik, að geta fagnað með ykkur,“ sagði Messi eftir leik þar sem hann stóð með fjölskyldu sinni á vellinum.

Um 80.000 stuðningsmenn hylltu argentínsku heimsmeistarana og Messi gekk um leikvanginn með verðlaunastyttuna sem liðið vann í Katar í desember, á meðan að flugeldar sprungu.

Hinn 35 ára gamli Messi skoraði 672 mörk á 17 leiktíðum fyrir Barcelona og hefur skorað 29 mörk fyrir PSG eftir komuna til Frakklands. Nú er hann svo kominn með 99 landsliðsmörk, þar af tvö í úrslitaleik HM.

Messi getur svo skorað sitt hundraðasta landsliðsmark þegar Argentína spilar við karabíska eyríkið Curacao á þriðjudaginn.

Það var Thiago Almada sem skoraði fyrra mark Argentínu í Buenos Aires í gær, á elleftu mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×