„Hann bombaði þennan leik og var algjörlega frábær“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2021 10:31 Tumi Steinn Rúnarsson skoraði tíu mörk og gaf sex stoðsendingar í sigri Valsmanna á FH. Vísir/Vilhelm Stjarnan í sigri Valsmanna á FH-ingum í Olís deildinni í gær var mjög efnilegur leikmaður sem hefur ekki fengið alveg að njóta sín hjá Val í vetur. Hann greip aftur á móti tækifærið með báðum höndum þegar hann fékk það í stórleiknum á Hlíðarenda í gærkvöldi.
Anton Rúnarsson fór á kostum í sigri Valsmanna á dögunum en hann tók út leikbann á móti FH í gær. Það þýddi að Tumi Steinn Rúnarsson þurfti að axla meiri ábyrgð. Seinni bylgjan fór yfir frammistöðu stráksins í sigrinum á FH. „Sá var heldur betur tilbúinn í það að axla ábyrgðina. Tíu mörk í þrettán skotum, tíu sköpuð færi, sex stoðsendingar og fjögur fiskuð víti. Bjarni, þér fannst æðislegt að horfa á hann í kvöld,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson. „Ég er búinn að kalla mikið eftir því þegar við höfum verið að ræða saman að hann fái að spila meira. Mér fannst á tímabili hann vera á leiðinni að vera einn besti miðjumaður landsins. Hann hefur ekki fundið taktinn hingað til enda hefur hann setið svolítið mikið,“ sagði Bjarni Fritzson. „Anton er náttúrulega frábær líka og það er svolítið erfitt fyrir Snorra að halda þeim báðum á lofti. Það var bara svo ánægjulegt að sjá hann fá sextíu mínútur og fá sjálfstraustið. Hann bombaði þennan leik og var algjörlega frábær,“ sagði Bjarni. Klippa: Seinni bylgjan: Frammistaða Tuma Steins á móti FH Einar Andri Einarsson þekkir Tuma Stein mjög vel enda þjálfaði hann hjá Aftureldingu á síðustu leiktíð. Henry Birgir spurði Einar Andri um það hvernig týpa þessi strákur væri. „Þegar það var ljóst að Anton yrði í leikbanni þá þarf enginn að segja mér annað en það hann hafi ætlað að nýta tækifærið. Hann hefur gríðarlegan metnað og vilja en á sama tíma mjög góður liðsmaður og allt það. Hann er búinn að segja alla réttu hlutina í viðtölum eftir leik,“ sagði Einar Andri. „Ég skal lofa ykkur því að hann er búinn að telja niður klukkutímana og dagana fram að leik. Það kom mér ekki á óvart að sjá hann svona beittan og einbeittan. Maður sá það strax á svipnum á honum í upphituninni að hann ætlaði virkilega að láta til sín taka,“ sagði Einar Andri. Það má sjá alla umfjöllun þeirra um Tuma Stein í myndbandinu hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Seinni bylgjan Valur Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Íslenski boltinn Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Handbolti Fleiri fréttir Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið Sjá meira