Innlent

Breytingar­til­lögur felldar jafn­óðum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir hefur jafnan gert grein fyrir atkvæði sínu á Alþingi í dag. Myndin var tekin þar sem hún kastaði kveðju á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir hefur jafnan gert grein fyrir atkvæði sínu á Alþingi í dag. Myndin var tekin þar sem hún kastaði kveðju á mótmælendur fyrir utan Alþingishúsið. Vísir/Vilhelm

Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum.

Breytingartillögurnar hafa almennt verið felldar með 32 atkvæðum; 15 segja yfirleitt já og 5 greiða ekki atkvæði. Það eru jafnan þingmenn Flokks fólksins sem ekki hafa greitt atkvæði með eða á móti.

Óhætt er að segja að málið hafi verið umdeilt en fjölmargir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt frumvarpið harðlega. Á þingfundinum sem nú stendur yfir þurfti Birgir Ármannsson forseti Alþingis að biðja gest á þingpöllum um að hafa hljóð, en einn heyrðist saka þingmenn um misnotkun á valdi.

Arndís Anna Katrínardóttir Gunnarsdóttir hefur reglulega tekið til máls á Alþingi í kvöld og hafa Píratar staðið fyrir mörgum breytingartillögum á frumvarpinu. Þingmenn flokksins gagrýndu ákvæði frumvarpsins sem þau telja torvelda endurupptöku mála og segja það setja hættulegt fordæmi.

Herbergi fullt af myglu

Arndís Anna veltir upp mikilvægi ákvæðis um að útlendingur teljist ekki umsækjandi um alþjóðlega vernd ef máli hans hefur verið lokið á stjórnsýslustigi. 

„Það er hvorki í þágu skilvirkni, sparnaðar fyrir ríkissjóð né í þágu mannúðar - það er ekki í þágu eins eða neins, þessi breyting. Hún snýst um það að svelta flóttafólk til hlýðni, treysta á það að með því að henda þeim út á götuna allslausum að þá muni þeir loksins drífa sig heim. Þeir hljóta að hanga hérna vegna þess að þau fá tíu þúsund á viku, búa í einhverju herbergi, fullu af myglu með einhverju bláókunnugu fólki. Það er aðdráttarafl sem þarf að taka út, er það ekki,“ spurði Arndís Anna. 

Margir þingmenn hafa ákveðið að gera sérstaklega grein fyrir atkvæðum sínum.

„Þetta er nú sennilega eitt versta ákvæðið í þessu frumvarpi, eitt af því sem mest hefur verið rætt um í meðförum nefndarinnar og eitt af því sem hefur verið gagnrýnt hvað helst af þeim sem hafa komið fyrir nefndina, þeir sem hafa sérfræðiþekkingu til að meta hverjar afleiðingarnar verða. Það er verið að leggja það hér til að þessi tiltekna grein falli á brott, ég greiði heilshugar atkvæði með því og hvet aðra til að gera það sama. Ég segi já,“ sagði Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar.


Tengdar fréttir

Mót­mælt fyrir utan Al­þingi

Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag.

Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“

Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×