Viðskipti erlent

Vonir dofna vegna Delta-afbrigðisins

Samúel Karl Ólason skrifar
Bandaríkjamenn vilji ólmir eyða peningum sínum um þessar mundir en fyrirtæki eigi erfitt með að auka framleiðslu á nýjan leik.
Bandaríkjamenn vilji ólmir eyða peningum sínum um þessar mundir en fyrirtæki eigi erfitt með að auka framleiðslu á nýjan leik. AP/Richard Drew

Þær vonir sem fjárfestar víða um heim höfðu varðandi það að lífið væri að færast í eðlilegan farveg, hafa ekki ræst að fullu. Hagkerfi hafa ekki jafnað sig eins hratt og vonast var og óttast er að það geti jafnvel tekið langan tíma vegna útbreiðslu Delta-afbrigðisins.

Þetta kemur meðal annars fram í frétt Reuters þar sem haft er eftir nokkrum fjármálasérfræðingum að þessi hægagangur, verðhækkanir og útbreiðsla Delta-afbrigðis kórónuveirunnar hafi valdið áhyggjum á fjármálamörkuðum.

Fréttaveitan vitnar til að mynda í minnisblað George Saravelos, sem er yfir fjármálaráðgjafadeild Deutsche Bank, að dregið hafi úr neyslu samhliða verðhækkunum og það sé öfugt við það sem búast mætti við. Það gefi til kynna að uppsveifla gæti tekið tíma.

Sambærileg skilaboð hafa borist frá Bank of America Merill Lynch og eru fjárfestar sagðir hafa flutt peninga sína í var í tiltölulega öruggum fjárfestum eins og ríkisskuldabréf, svo eitthvað sé nefnt.

Reuters segir kannanir meðal bandarískra fjárfesta sýna fram á að þeir eru farnir að sýna meiri varkárni í fjárfestingum.

Í frétt New York Times segir að hagkerfi Bandaríkjanna eigi í meiri erfiðleikum en búist var við í vor. Bandaríkjamenn virðast þó neysluglaðir.

Ríkisstjórn Joes Biden og forsvarsmenn Seðlabanka Bandaríkjanna eru sagðir vilja ná jafnvægi á nýjan leik án óþarflega mikillar verðbólgu. NYT segir þó að til að ná því þurfi að finna lausn á miklu ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.

Bandaríkjamenn vilji ólmir eyða peningum sínum um þessar mundir en fyrirtæki eigi erfitt með að auka framleiðslu á nýjan leik. Það er að hluta til vegna heimslægs skorts á hálfleiðurum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×