Ríflega 1500 loftslagsmótmælendur handteknir Árni Sæberg skrifar 27. maí 2023 21:54 Lögregluþjónar beittu ýmsum brögðum til þess að stöðva mótmælin. Sem van der Wal/EPA Lögreglan í Haag í Hollandi handtók í dag 1579 aðgerðarsinna sem reyndu að teppa hraðbraut í nafni loftslagsaðgerða. Flestum þeirra var að lokum sleppt en líklegt er að fjörutíu þeirra verði sóttir til saka fyrir aðgerðir sínar í dag. Meðal mótmælenda var þekkt hollensk leikkona.
Að sögn lögregluyfirvalda í Haag voru mótmælendurnir handteknir þar sem þeir neituðu að rýma hraðbrautina þrátt fyrir að borgaryfirvöld hefðu bannað mótmælin. Hollenski miðillinn NOS greinir frá. Lögreglan segir að fjörutíu hinna handteknu séu grunaðir um að hafa hindrað starf lögreglu og framið skemmdarverk. Ekki liggi þó enn fyrir hvort þeir verði sóttir til saka fyrir athæfi sitt. Þá segir að einn hafi verið handtekinn grunaður um að hafa bitið lögreglumann. Talsmenn umhverfisverndarsamtakann Extinction rebellion, sem skipulögðu mótmælin, hafa sagst ekkert kannast við meinta líkamsárás. Öðrum handteknum mótmælendum hafi verið sleppt úr haldi nánast samstundis, enda hafi mótmælin að mestu farið friðsamlega fram. Mótmælendur létu vatnið lítið á sig fá. Á skiltinu stendur „Hvaða steingervingur fjárfestir enn í olíu?“Sem van der Wal/EPA Mótmælendur mættu í sundfötum Lögreglan beitti meðal annars öflugum vatnsslöngum til þess að fá mótmælendur til þess að yfirgefa hraðbrautina. Lögreglan segir þó að vatnsbununum hafi verið beitt í hófi. Í frétt NOS segir að sumir mótmælenda hafi mætt vel undirbúnir til þess að takast á við vatnsgusur frá lögreglu. Tugir þeirra hafi raðað sér upp fyrir framan vatnsslöngurnar, íklæddir sundfatnaði og pollagöllum. Ein þeirra sem varð fyrir barðinu á vatnsslöngunum var þekkta hollenska leikkonan Carice van Houten, sem flestir þekkja úr sjónvarpsþáttaröðinni Krúnuleikunum, þar sem hún lék hina göldróttu Melisandre. Haft er eftir henni að hún hafi fengið yfir sig væna gusu áður en hún var handtekin en að lokum sleppt úr haldi. Carice van Houten er ötull loftslagsaðgerðasinni.Michel Porro/Getty Þá hefur lögreglan í Haag greint frá því að hún hafi nýtt sjúkrabörur á hjólum til þess að koma mótmælendum af hraðbrautinni „með öruggum og skilvirkum hætti“. We gebruiken een brancard op wielen om actievoerders veilig en effectief te verplaatsen. #27Mei #DenHaag pic.twitter.com/VKQlsmAVWa— Politie Eenheid Den Haag (@POL_DenHaag) May 27, 2023
Holland Loftslagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Sjá meira