Hannes ræðir ferilinn við BBC: Líklegra að vinna í lottóinu en að ná þessu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2021 09:01 Hannes Halldórsson fagnar hér góðum úrslitum á HM í Rússlandi 2018 umkringdur ljósmyndurrum alls staðar að úr heiminum. Getty/Lukasz Laskowski Hannes Þór Halldórsson er í flottu viðtali á heimasíðu breska ríkisútvarpsins þar sem hann fer yfir ferill sinn með Ciaran Varle.
Hannes fer þar yfir það af hverju hann hætti í fótbolta eftir tvítugt en kom svo aftur, vann sér sæti í landsliðinu 28 ára gamall, var hluti af liðinu sem vann England í sextán liða úrslitum EM og varði síðan víti frá Lionel Messi á HM. The life story of Icelandic goalkeeper Hannes Thor Halldorsson sounds more like a script for a sports film..."It would make a bad script for a movie. People probably wouldn't believe it."#bbcfootball— BBC Sport (@BBCSport) October 12, 2021 „Þetta yrði slæmt handrit fyrir kvikmynd,“ sagði Hannes Þór Halldórsson og bætti við: „Fólk myndi líklega ekki þykja þetta trúverðugt,“ sagði Hannes. Blaðamaður breska ríkisútvarpsins segir frá nýju kvikmyndinni Leynilögga, Cop Secret á ensku, sem hún kallar LGBTQ+ hasargrínmynd en þar kemur fram að myndin hafi fengið góða dóma og hafi nýverið verið sýnd á kvikmyndahátíðinni BFI Festival í London. Gamli þjálfarinn í KR fékk hann til að byrja aftur Hannes meiddist á öxl og hætti í fótboltanum til að einbeita sér að kvikmyndagerð. Það var hins vegar fyrrum þjálfari hans hjá KR sem hringdi í hann og fékk hann til að spila með Leikni í C-deildinni. „Ég var þá að vinna sem kvikmyndagerðarmaður og ákvað að sjá hvorum megin ég kæmist lengra. Hvorugur boltinn hætti síðan að rúlla,“ sagði Hannes. „Það er ótrúleg tilfinning að spila í stórum fótboltaleik en ég myndi segja að það væri svipuð tilfinning að sitja í bíósal og horfa á mynd sem þú hefur staðið að,“ sagði Hannes. Hannes segist hafa verið að brenna út árið 2013. „Það var ekki eðlilegt að vera aðalmarkvörður landsliðsins en þurfa að vera vinna á fullu með því,“ sagði Hannes. „Þegar ég náði loksins að verða atvinnumaður árið 2014 þá var ég ánægður að geta hvílt aðeins kvikmyndaferilinn. Ég spilaði erlendis í fimm til sex ár og ól börnin mín upp í fullt af löndum,“ sagði Hannes. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnusamband Íslands (@footballiceland) Aldrei verið eins gaman og þá Hannes fer líka yfir hápunktana á ferli sínum. „Það hefur aldrei verið eins gaman og á EM 2016. Þetta var eins og að vera á frábærum ferðamannastað með mörgum af þínum bestu vinum, í frábæru veðri og á fjögurra daga fresti spilaðir þú ótrúlegan leik,“ sagði Hannes. „Ef þú hugsar um draumastund fyrir markvörð þá væri það að verja víti frá Messi. Þegar ég var fyrst valinn í landsliðið þá setti ég mér það markmið að ná að spila fimmtíu landsleiki. Þessi leikur á móti Argentínu var númer fimmtíu,“ sagði Hannes. „Það er örugglega líklegra að vinna í lottóinu en að fara frá því að vera hættur í fótbolta til þess að verja víti frá besta leikmanni heims á HM,“ sagði Hannes. Það má lesa allt viðtalið hér.
HM 2022 í Katar Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Enski boltinn „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Fleiri fréttir Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Í beinni: Arsenal - Bournemouth | Geta aukið forskotið og sett pressu á City Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Klopp ósáttur við álagið: „Hádegisleikir eru glæpur“ Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli FH-ingar kynna besta lið sögunnar Ten Hag vildi fá Kane í sumar: „Þú veist að hann skorar þrjátíu mörk“ Fékk hrós frá Klopp: Vingjarnlegasti maður sem ég hef hitt Stórleikur á Samsung-vellinum og meistararnir fara í Mosó Rúnar Már fann neistann Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Eftirminnileg Skotlandsferð FC Sækó: Spiluðu við Celtic og heimsóttu Hampden Park Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir Sjá meira