Leggur blessun sína yfir sölu á óvirkum farsímainnviðum Sýnar Atli Ísleifsson skrifar 23. nóvember 2021 14:47 Væntanlegur söluhagnaður er talinn munu nema yfir sex milljörðum króna. Vísir/Vilhelm Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir sölu fjarskiptafyrirtækjanna Sýnar og Nova á óvirkum farsímainnviðum til Digital Bridge Group Inc.
Frá þessu segir í tilkynningu frá Sýn. Þar segir að síðasta dag marsmánaðar 2021 hafi Sýn og Nova undirritað samninga við bandaríska framtaksfjárfestingafélagsins Digital Bridge Group Inc., áður Colony Capital Inc., um sölu á óvirkum farsímainnviðum félagsins. „Í dag samþykkti [Samkeppniseftirlitið] kaupin án skilyrða og telur ekki forsendur til að aðhafast frekar í málinu,“ segir í tilkynningunni. Leigir aðstöðuna aftur til baka Á vef Samkeppniseftirlitsins segir að um sé að ræða kaup á svokölluðum óvirkum innviðum fjarskiptafélaganna, það er fasteignum, möstrum og öðrum búnaði sem telst ekki til virks búnaðar. Þannig séu sendar, kaplar og annar virkur búnaður ekki hluti af kaupunum. Í kjölfar samrunans muni hið nýstofnaða félag ITP leigja aðstöðuna aftur til baka á grundvelli þjónustusamnings. Samkeppniseftirlitið tók við rannsókn nokkra þætti til skoðunar og var það niðurstaðan að ekkki væri tilefni til íhlutunar vegna kaupanna. Var meðal annars litið til þess að kaupin afmarkist við óvirka innviði. Sjálfstæður markaður fyrir aðstöðuleigu fyrir stafrænan fjarskiptabúnað og annan mögulegan búnað á stærri sendastöðum sé í mótun hér á landi og óljóst hvernig hann muni þróast. Ekki markaðsráðandi staða á umræddum markaði Þá segir að verði ekki til markaðsráðandi staða á umræddum markaði og þar sem kaupandinn starfi ekki á öðrum mörkuðum fjarskiptaþjónustu séu líkur á því að hann hafi hvata til að bjóða keppinautum Nova og Sýnar eða öðrum fjarskiptafyrirtækjum aðgang að innviðunum, enda standi ekki samningar eða hagsmunir því í vegi. Það geti því leitt til aukinnar skilvirkni og minni aðgangshindrana. Eftirlitið tók sömuleiðis til ítarlegrar skoðunar þjónustusamninga kaupanda við Sýn og Nova í kjölfar samrunans. „Tók Samkeppniseftirlitið meðal annars til skoðunar uppbyggingu samninganna og hvort hætta væri á því að þeir gætu leitt til verðhækkana fyrir þjónustuna. Að mati eftirlitsins er ekki að sjá að sú hætta sé til staðar, til að mynda vegna uppbyggingar samninganna og þess að sameinað fyrirtæki mun njóta verulegs samkeppnislegs aðhalds af hálfu Símans og Mílu.“ Loks segir að Samkeppnieftirlitið hafi óskað eftir upplýsingum um samstarf Digital Bridge við Ardian, væntanlegan kaupanda að Mílu, innviðafyrirtæki Símans. „Samkvæmt upplýsingum samrunaaðila er um að ræða minniháttar samstarf og lítil eignatengsl þar sem Ardian eigi hverfandi hlut í þeim verkefnum sem fyrirtækin hafa bæði fjárfest í. Að mati Samkeppniseftirlitsins er afar mikilvægt að sjálfstæði þeirra fyrirtækja sem fjárfesta í fjarskiptainnviðum á Íslandi sé tryggt. Hyggst eftirlitið taka þessi tengsl viðkomandi fjárfesta til nánari skoðunar við rannsókn á kaupunum á Mílu.“ Sex milljarðar króna Í fyrri frétt Vísis um málið kom fram að væntanlegur söluhagnaður af sölunni myndi nema yfir sex milljörðum króna. Í ársfjórðungsuppgjöri fyrir annan ársfjórðung kom fram að söluverðið yrði ráðstafað til lækkunar á lánum, endurkaupa á hlutabréfum og í nýfjárfestingar. Vísir er í eigu Sýnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjarskipti Samkeppnismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira